Um KMÍ
Á döfinni

31.10.2022

Berdreymi hlýtur dómnefndarverðlaun á Seminci-kvikmyndahátíðinni

Kvikmyndin Berdreymi, eftir Guðmund Arnar Guðmundsson, hlaut dómnefndarverðlaun ungmenna á alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni Seminci í Valladolid á Spáni. Hátíðin er ein sú stærsta á Spáni og var haldin í 67. sinn 22.-29. október.

Guðmundur Arnar, leikstjóri myndarinnar, og Birgir Dagur Bjarkason, einn aðalleikara myndarinnar, veittu verðlaununum viðtöku á hátíðinni.

Berdreymi segir frá Adda, unglingsstrák í Reykjavík sem á skyggna móður. Hann og vinir hans alast upp án eftirlits og nota slagsmál til að leysa ágreininga. Einn daginn ákveður Addi að taka vinalausan strák undir sinn verndarvæng. Djúp vinátta myndast á milli strákanna en ögrandi hegðun þeirra leiðir þá í lífshættulegar aðstæður. Draumkenndar sýnir byrja þá að birtast Adda. Mun nýfengið innsæi hans verða honum og vinum hans leiðarljós í átt að betra lífi eða munu þeir sökkva lengra inn í heim ofbeldis?

Myndin var heimsfrumsýnd á alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Berlín og hefur unnið til fjölda verðlauna.