Um KMÍ
Á döfinni

16.3.2020

Bergmál vinnur til verðlauna í Rússlandi

Kvikmyndin Bergmál eftir Rúnar Rúnarsson vann aðalverðlaun dómnefndar á kvikmyndahátíðinni Gyllti hrafninn sem fór fram dagana 9. - 15. mars í Anadyr í Rússlandi. Vigfús Þormar Gunnarsson, leikari og eigandi Doorway casting sem sá um leikaraval fyrir Bergmál, veitti verðlaununum viðtöku við lokaathöfn hátíðarinnar.

Bergmál hefur verið að ferðast víða á milli kvikmyndahátíða síðan í haust þegar myndin var heimsfrumsýnd í aðalkeppni alþjóðlegu kvikmyndahátíðarinnar í Locarno í Sviss. Þar hlaut myndin aðalverðlun dómnefndar unga fólksins. Nokkru síðar fékk Bergmál verðlaun fyrir bestu leikstjórn á Seminci, alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Valladolid á Spáni, verðlaun Lúthersku kirkjunnar í Lubeck í þýskalandi og tónskáldið Kjartan Sveinsson hlaut verðlaun fyrir tónlistina í myndinni í Les Arcs í Frakklandi.