Heimildamyndin Bogancloch heimsfrumsýnd í Locarno
Bogancloch, heimildamynd eftir Ben Rivers, var heimsfrumsýnd í aðalkeppni Locarno-hátíðarinnar í Sviss 9. ágúst.
Myndin er bresk, þýsk og íslensk samframleiðsla og hlaut framleiðslustyrk frá Kvikmyndamiðstöð Íslands. Hanna Björk Valsdóttir er einn af framleiðendum myndarinnar fyrir Akkeri Films og Björn Viktorsson sá um hljóðvinnslu.
https://www.youtube.com/watch?v=9u6TJ88JxMs
Bogancloch er listræn heimildamynd skotin á 16mm filmu og fjallar um líf Jake Williams í afskekktum skógi í Skotlandi. Hún er sjálfstætt framhald af Two Years at Sea (2011) sem hlaut mikið lof gagnrýnenda og vann fjölmörg alþjóðleg verðlaun.
Rætt er við leikstjórann, Ben Rivers, í Variety um myndina og samstarf hans og Jake Williams.
Locarno-hátíðin er ein sú virtasta í heimi og fer fram í 77. skiptið í ár.