Bransaveisla ÚTÓN fer fram fyrstu vikuna í nóvember - fókus er á kvikmyndatónlist
ÚTÓN kynnir Bransaveislu, dagskrá fyrir fyrstu vikuna í nóvember sem unnið hefur verið að með samstarfsaðilum: Íslandsstofa, STEF, Tónlistarborginni Reykjavík, INNI, Listaháskóla Íslands, SÍK, Kvikmyndamiðstöð Íslands og RIFF.
Í ár er fókus á kvikmyndatónlist í kjölfar ævintýrarlegrar velgengni íslenskra kvikmyndatónskálda síðustu ára og tengingum þeirra við kvikmyndgeirann en þar hefur átt sér mikil uppbygging. Einning verður í boði stuðningur við umboðsmennsku og kynningar á tónlistarforlögum (e. publishing) og alþjóðlega samaningargerð.
Dagskrána og nánari upplýsingar um hvern viðburð fyrir sig má finna hér fyrir neðan:
Opnir Viðburðir:
TÓNABÍÓ - Málþing um tónlist í kvikmyndum
2. NÓVEMBER, KL. 9-16: NORRÆNA HÚSIÐ
Málþing fyrir kvikmynda- og tónlistariðnaðinn um samspil þessara greina og þá sérstaklega um framkvæmd tónsetninga á þáttum og kvikmyndum. Margir af helstu sérfræðingum heims koma hingað til lands til að ræða við íslenska fagaðila í tónlist og kvikmyndum til að kynna hvernig þessar greinar geta best unnið saman.
Það eru þau Thomas Golubic tónlistarráðgjafi m.a. fyrir þættina The Walking Dead og Breaking Bad, Tim Husom frá Redbird Music sem var meðal annars umboðsmaður Jóhanns heitins Jóhannssonar, Alfons Karabuda, forseta ECSA og IMC sem mun ræða uppkaupssamninga, Steve Schnur, sem er yfir tónlist hjá Electronic Arts leikjafyrirtækinu sem og okkar Hildur Guðnadóttir Óskarsverðlaunahafi sem samdi tónlistina fyrir meðal annars kvikmyndina Joker.
Miðaverð: 2.900 kr.
Alþjóðleg samningagerð í tónlist – Introduction to International Music Law & Mixer [fer fram á ensku]
5. NÓVEMBER KL. 15-17:30: SKRIFSTOFUR INNI Á BERGÞÓRUGÖTU
Afslappaðar hringborðsumræður með virtum lögfræðingum sem ætla að kynna grunnatriði í alþjóðlegri samningagerð í tónlist. Hringborðið munu þau Alex Cole (Russells), Willie Ryan (INNI), Anna Tómasdóttir (Vík) skipa og verður umræðunum stýrt af Guðrúnu Björk, framkvæmdastjóra STEF.
Saman hafa þau reynslu bæði í meira hefðbundnum plötusamningum sem hljómsveit eða sólo-artisti myndi skrifa undir; sem og tónlistarforlagningu sem snýr að því að skapa auknar tekjur á verkum vernduð af höfundarrétti með því að koma tónlistinni í verk eins og kvikmyndir, sjónvarpsþætti, og auglýsingar.
Því miður er alltof algengt að tónlistarfólk hafi skrifað undir samninga í gegnum tíðina sem reynast því svo ekki hliðhollir. Það er eiginlega ekki hægt að ofmeta mikilvægi þess að fá faglega þekkingu lögfræðings inn í samningaferlið þar sem sumir samningar ná jafnvel yfir allt ævistarf tónskáldsins sem undir hann ritar.
Með þessum umræðum vonumst við hjá ÚTÓN og INNI til að valdefla tónlistarfólk í samningagerð við alþjóðlega bransann með því að bjóða upp á afslappað og öruggt umhverfi með fagaðilum sem eru komin til að upplýsa og svara spurningum.
Hringborðið fer fram á skrifstofu INNI og er opið öllum. Kokteill fylgir á eftir.
Skráning fer fram hér.
Tónlistin í Netflixsseríunni KATLA – Morning Coffee with the Nordics LIVE [fer fram á ensku]
4. NÓVEMBER. KL. 8:30-10: HÚS MÁLS &MENNINGAR Á LAUGAVEGI
Morgunkaffi með Norðurlöndunum er þáttaröð sem unnin er í samvinnu við NOMEX, samtaka útflutningsskrifstofa Norðurlandanna, þar sem við fáum að gægjast á bak við tjöldin á farsælustu tónlistarverkefnunum þar.
Að þessu sinni fáum við að heyra hvernig hljóðsetning sjónvarpsseríunnar ‘KATLA' var unnin, en hún var ein tíu vinsælustu þáttaraða á Netflix streymisveitunni í júní. Rætt verður við Högna Egilsson, tónskáld sem samdi tónlistina auk Sigurjóns Kjartanssonar sem er meðhöfundur og framleiðandi verkefnisins. Spyrill verður Colm O'Herlihy, stofnandi INNI, fyrsta tónlistarforleggjarafyrirtækis (e. Publishing) Íslands.
Spjallið fer fram í Húsi Máls & Menningar og er opið öllum, en fer einnig fram í streymi.
Skráning fer fram hér.
Samstarf tónskálda og kvikmyndaframleiðenda með Thomas Golubic [fer fram á ensku]
5. NÓVEMBER KL. 10-12, LISTAHÁSKÓLI ÍSLANDS
Thomas Golubic heldur fyrirlestur fyrir kvikmyndatónskáld sérstaklega með nytsamlegum heilræðum varðandi vinnuna með leikstjórum og framleiðendum sjónvarpsþátta, en segja má að hann sé eins konar goðsögn í faginu. Hann er meðal annars þekktur fyrir að hafa valið tónlist fyrir hinar margrómuðu sjónvarpsseríur Breaking Bad, Better Call Saul og The Walking Dead. Þar að auki hefur hann verið formaður samtaka tónlistarstjóra í Bandaríkjunum, starfað við upptökustjórn og hlotið Grammy-tilnefningar sem slíkur.
Hann fer yfir þróunarferlið í heild sinni, frá tengslamyndun og kynningarstarfi fyrir tónskáld yfir í afhendingu á fullunnu verki. Í því felst meðal annars greining á handriti, samvinna við leikstjóra og aðra listræna stjórnendur verkefna, hvernig á að fá hugmyndir, nýta gagnrýni og byggja upp söguna.
Skráning fer fram hér.
Meistaranámskeið og tækifæri til að kynnast erlendum tónlistarforleggjurum:
Viðburðir sem þarf að sækja um
Meistaranámskeið í umboðsmennsku með Jeremy Lascelles
3. NÓVEMBER KL. 15-18, TÓNKLASANUM HLEMMI
ÚTÓN býður til landsins reynsluboltanum Jeremy Lascelles til að halda meistaranámskeið í umboðsmennsku (e. Management Masterclass), sérstaklega miðað að starfandi umboðsskrifstofum og fagaðilum.
Jeremy Lascelles og fyrirtæki hans Blue Raincoat eru margrómuð í greininni en hann sinnir ekki einungis umbosðmennsku heldur líka tónlistarforlagningu (e. publishing) og útgáfu. Hann hefur unnið með tónlistarfólki á borð við Phoebe Bridgers, Cigarettes After Sex; Laura Marling, Bon Iver, Fleet Foxes and mörgum fleiri.
Takmarkað sætaframboð, Jeremy velur 5-6 aðila inn úr umsóknum.
Nánari upplýsingar á Facebook viðburði
Umsókn um þátttöku fer fram hér.
Meistaranámskeið í tónlistarvali fyrir kvikmyndir og sjónvarpsþætti með Thomas Golubic
3. NÓVEMBER KL. 10-12, Í HÚSNÆÐI STEF Á LAUFÁSVEGI
Í framhaldi af Tónabíói, málþingi um tónlist í kvikmyndum býðst tónskáldum og fagaðilum í kvikmynda- og sjónvarpsframleiðslu kostur á að sækja meistaranámskeið (e. Masterclass) um tónlistarstjórnun með sjálfum Thomas Golubic.
Segja má að hann sé eins konar goðsögn í faginu, en hann er meðal annars þekktur fyrir að hafa valið tónlist fyrir hina margrómuðu sjónvarpsseríur Breaking Bad, Better Call Saul og The Walking Dead. Þar að auki hefur hann starfað við upptökustjórn og hlotið Grammy-tilnefningar sem slíkur.
Takmarkað sætaframboð.
Nánari upplýsingar á Facebook viðburði
Umsókn um þátttöku fer fram hér.
Einstaklingsfundir með tónlistarforleggjurum
4. NÓV KL. 10-12, TÓNKLASINN HLEMMI
STEF og ÚTÓN bjóða til landsins hópi af alþjóðlegum tónlistarforleggjurum (e. Publisher) en það eru þeir aðilar sem umsýsla höfundarétt fyrir tónverk á alþjóðamarkaði. Þeirra markmið er að fá tekjur fyrir verkin, oft með því að semja um notkun þeirra í þáttum, kvikmyndum og auglýsingum fyrir þá höfunda sem þeir eru með samning við. Sumir vinna líka í því að búa til samstörf höfunda og svokallaðar tónsmiðjur. Oft geta þessir samningar þýtt töluverðar tekjur fyrir tónskáld og lagahöfunda en henta ekki öllum, og því mikilvægt að kynna sér möguleikana og forsendurnar vel. Markmiðið er ekki síst að dýpka skilning okkar á starfsemi tónlistarforleggjara.
Alls verða sex tónlistarforleggjarar með einstaklingsfundi sem hægt er að sækja um fundi með: Jeremy Lascelles frá Blue Raincoat Music, David McGinnis frá Mute Song, Eric Elvenes frá Knirckefritt Management, Nino Lintermo frá Nordic Music Partners, Riccardo Furrer frá Kobalt og Colm O'Herlihy frá INNI Publishing.
Takmarkað sætaframboð.
Nánari upplýsingar á Facebook viðburði
Umsókn um þátttöku fer fram hér.