Um KMÍ
Á döfinni

11.3.2025

Breyting á verklagi í meðferð umsókna í Kvikmyndasjóð

Kvikmyndamiðstöð Íslands tilkynnir eftirfarandi breytingu á verklagi í meðferð umsókna í Kvikmyndasjóð sem tekur gildi frá og með 17. mars.

Kvikmyndamiðstöð mun framvegis senda umsækjendum um styrki til kvikmyndagerðar listrænt mat ráðgjafa um leið og það liggur fyrir. Með þessari breytingu gefst umsækjendum tækifæri til að koma á framfæri skriflegum athugasemdum varðandi matið áður en forstöðumaður tekur endanlega ákvörðun um styrkveitingu.

Fundir vegna umsókna einstakra verkefna í Kvikmyndasjóð leggjast af. Slíkir fundir geta torveldað framkvæmd leiðbeiningaskyldu innan ramma stjórnsýslulaga og skapað hættu á að jafnræðisregla sé ekki tryggð í samskiptum við umsækjendur. Af þessum sökum eru allar leiðbeiningar um umsóknarferlið veittar með almennum hætti, til að tryggja jafnræði og gagnsæi í meðferð umsókna.

Forstöðumaður Kvikmyndamiðstöðvar tekur endanlega ákvörðun um styrkveitingu úr Kvikmyndasjóði, með hliðsjón af öllum fyrirliggjandi gögnum, forgangsröðun og fjárhagsstöðu sjóðsins, sbr. 7.gr. kvikmyndalaga nr. 137/2001.

Hægt er að senda fyrirspurnir vegna fyrirhugaðrar breytingar á umsoknir@kvikmyndamidstod.is.