Um KMÍ
Á döfinni

20.9.2024

Dagskrá Bransadaga á RIFF 2024

Bransadagar RIFF 2024 fara fram 2. til 6. október.

Þar gefst fagfólki í kvikmyndagerð einstakt tækifæri til að koma saman, taka þátt í skapandi vinnu og þróa nýjar hugmyndir. Hlutverk bransadaga er meðal annars að varpa ljósi á þann magnaða árangur sem íslensk kvikmyndagerð hefur náð, tengja saman fagfólk frá öllum heimshornum og deila hugmyndum og hugverkum.

Markmið Bransadaga er að tengja saman fagfólk og efla alþjóðlegt samstarf, vekja athygli á því sem vel er gert í íslenskri kvikmyndagerð og skapa vettvang til að deila hugmyndum og stuðla að nýsköpun í kvikmyndagerð.

Meðal efnisatriða í dagskránni er pallborðsumræða um barnamenningu, 2. október í Norræna húsinu. Í upphafi flytur Rikke Flodin framsögu en hún er danskur sérfræðingur sem hefur getið sér gott orð fyrir að beita verkfærum gervigreindar og mannfræði til að hjálpa kvikmyndagerðarfólki að ná til yngri áhorfenda. Í kjölfarið taka við pallborðsumræður þar sem ásamt Flodin munu taka til máls leikstýran, lekkonan og handritshöfundurinn Agnes Wild, handritshöfundurinn Helga Arnardóttir, og Julia Granath, sem hefur í yfir áratug stýrt barnakvikmyndahátíðinni BUFF í Malmö. Björgvin Franz Gíslason stýrir umræðunum.

Þá má einnig nefna RIFF Talks, einnig 2. október í Norræna húsinu, þar sem ungt og efnilegt kvikmyndagerðarfólk, í bland við meiri reynslubolta, flytja stutt erindi með það að markmiði að blása yngri kollegum sínum og nemum vind í brjóst – en öll sem hafa áhuga á kvikmyndagerð eru velkomin.

3. október verður svo boðið upp á meistaraspjöll og pallborðsumræður um spunagervigreind (generative AI) og möguleikana og spurningarnar sem vakna varðandi aðkomu hennar að kvikmyndagerð. Ásgrímur Sverrisson stýrir umræðum.

4. október fer fram meistaraspjall um búningahönnun og förðun með tveimur mikilsmetnu fagfólki á því sviði, þeim Margréti Einarsdóttur förðunarmeistara og Ástu Hafþórsdóttur.

Hér hefur verið stiklað á stóru um dagskrá Bransadaga, en hana má nálgast í heild á vef RIFF .