Um KMÍ
Á döfinni

23.9.2021

Dýrið frumsýnd á Íslandi

Dýrið eftir Valdimar Jóhannsson verður frumsýnd í íslenskum kvikmyndahúsum þann 24. september. Myndin verður sýnd í Háskólabíói, Smárabíói, Laugarásbíói og Borgarbíói á Akureyri. Þann 21. september var hún forsýnd í Háskólabíói og hlaut frábærar viðtökur viðstaddra.

Dýrið var heimsfrumsýnd á Cannes kvikmyndahátíðinni og hlaut þar verðlaun sem frumlegasta kvikmyndin í Un Certain Regard keppninni. Kvikmyndahátíðin í Cannes er ein stærsta og virtusta kvikmyndahátíð heims. Í kjölfarið hefur myndin hlotið góða dóma í hinum ýmsu virtu kvikmyndatímaritum á borð við Screen International, Variety og The Hollywood Reporter.

Dýrið Trailer

Myndin segir frá sauðfjárbændunum Maríu og Ingvari sem búa í fögrum en afskekktum dal. Þegar dularfull vera fæðist á bóndabænum ákveða þau að halda henni og ala upp sem sitt eigið afkvæmi. Vonin um nýja fjölskyldu færir þeim mikla hamingju um stund, hamingju sem verður þeim síðar að tortímingu.

Valdimar Jóhannsson leikstýrði myndinni og handritið skrifaði hann í samvinnu við Sjón. Myndin er framleidd af Hrönn Kristinsdóttur og Söru Nassim fyrir Go to Sheep, í samvinnu við sænska og pólska framleiðendur.

Með aðalhlutverk fara sænska leikkonan Noomi Rapace og Hilmir Snær Guðnason, en Noomi bjó á Íslandi sem barn og er þetta fyrsta aðalhlutverk hennar á íslensku. Björn Hlynur Haraldsson og Ingvar E. Sigurðsson fara einnig með hlutverk í myndinni. Stjórn kvikmyndatöku var í höndum Eli Arenson og Agnieszka Glińska sá um klippingu myndarinnar. Þórarinn Guðnason samdi tónlist myndarinnar og hljóðhönnun var í höndum Ingvars Lundberg og Björns Viktorssonar.

Sölufyrirtæki myndarinnar á alþjóðavísu er New Europe Film Sales og Sena sér um sölu og dreifingu hér á landi.