Um KMÍ
Á döfinni

12.10.2021

Dýrið tilnefnd til European Discovery 2021 - FIPRESCI verðlauna á EFA

Dýrið eftir Valdimar Jóhannsson er tilnefnd til Evrópsku kvikmyndaverðlaunanna í flokki European Discovery  2021 - Prix FIPRESCI. Verðlaunin eru veitt árlega til leikstjóra með sína fyrstu kvikmynd í fullri lengd, en Dýrið er á meðal sex kvikmynda sem tilnefndar eru. Verðlaunin eru veitt af FIPRESCI sem eru alþjóðleg samtök kvikmyndagagnrýnenda.

Dýrið var heimsfrumsýnd á Cannes kvikmyndahátíðinni og hlaut þar verðlaun sem frumlegasta kvikmyndin í Un Certain Regard keppninni. Í kjölfarið hefur myndin ferðast víða á hátíðum og verið sýnd í hátt í 600 kvikmyndahúsum í Bandaríkjunum. Á fyrstu þremur dögum í sýningu þénaði myndin ríflega eina milljón Bandaríkjadali í gegnum miðasölu og þar með orðin tekjuhæsta íslenska kvikmyndin sem sýnd hefur verið í Bandaríkjunum.

Dýrið trailer

Myndin segir frá sauðfjárbændunum Maríu og Ingvari sem búa í fögrum en afskekktum dal. Þegar dularfull vera fæðist á bóndabænum ákveða þau að halda henni og ala upp sem sitt eigið afkvæmi. Vonin um nýja fjölskyldu færir þeim mikla hamingju um stund, hamingju sem verður þeim síðar að tortímingu.

Valdimar Jóhannsson leikstýrði myndinni og handritið skrifaði hann í samvinnu við Sjón. Myndin er framleidd af Hrönn Kristinsdóttur og Söru Nassim fyrir Go to Sheep, í samvinnu við sænska og pólska framleiðendur.

Með aðalhlutverk fara sænska leikkonan Noomi Rapace, Hilmir Snær Guðnason og Björn Hlynur Haraldsson. Stjórn kvikmyndatöku var í höndum Eli Arenson og Agnieszka Glińska sá um klippingu myndarinnar. Þórarinn Guðnason samdi tónlist myndarinnar og hljóðhönnun var í höndum Ingvars Lundberg og Björns Viktorssonar.

Sölufyrirtæki myndarinnar á alþjóðavísu er New Europe Film Sales og Sena sér um sölu og dreifingu hér á landi. 

Verðlaunaafhending Evrópsku kvikmyndaverðlaunanna fer fram í Berlín þann 11. desember næstkomandi.