Um KMÍ
Á döfinni

6.10.2020

Edduverðlaunahafar 2020 tilkynntir í kvöld í sérstakri dagskrá á RÚV

Sjá Edduverðlaunin 2020 - Agnes Joy og Hvítur, hvítur dagur sigursælust

Edduverðlaununum verða gerð skil í sérstakri dagskrá á RÚV í kvöld, 6. október, kl. 20:00. Í ljósi samkomutakmarkana verður dagskráin með öðru sniði en venja er, styttri og snarpari, um leið og tilnefndum og verðlaunahöfum verður hampað. Að auki verður verðlaunaafhendingin ekki í beinni útsendingu. Tilnefningar til Eddunnar 2020 hafa legið fyrir síðan í ársbyrjun og ennfremur lauk kosningu meðlima Íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademíunnar í marsmánuði.

Þá hefur stjórn Íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademíunnar (ÍKSA) sent frá sér tilkynningu varðandi Edduverðlaunaþáttinn í ljósi þeirra aðstæðna í útbreiðslu faraldursins undanfarna daga. Tilkynningin er svohljóðandi:

Í kvöld verður tilkynnt um hverjir hljóta Edduverðlaunin, íslensku kvikmynda- og sjónvarpsverðlaunin, árið 2020. Í þættinum sjáum við þegar nokkrum verðlaunahöfum var komið á óvart fyrr í vikunni auk þess sem tilkynnt verður um sigur í öðrum flokkum. Í ljósi þeirra tíðinda að sóttvarnalæknir, Þórólfur Guðnason, hyggist leggja til að aðgerðir vegna útbreiðslu COVID-19 verði hertar vill stjórn ÍKSA taka fram að þátturinn var tekinn upp og er það í fyrsta sinn sem Edduhátíðin er unnin með þessum hætti. ,,Við vildum gæta fyllsta öryggis varðandi að tilkynna og afhenda verðlaunin. Það er erfiðara að gæta að slíku í beinni útsendingu og því ákváðum við að taka upp óvæntar uppákomur, viðtöl og kynningar. Það var vandað mjög til verka við gerð þáttarins og ég fullyrði að þetta er verður góð skemmtun og að einhverjum verður vissulega komið á óvart. Það er gríðarlegur léttir að við skyldum hafa ákveðið að fara þessa leið því ef það hefði staðið til að vera í beinni útsendingu í kvöld þá hefðum við þurft að fresta Eddunni enn aftur miðað við nýjustu tíðindi”, segir Hlín Jóhannesdóttir formaður stjórnar ÍKSA.

Hvítur, hvítur dagur eftir Hlyn Pálmason hlaut flestar tilnefningar til Eddunnar, 12 talsins. Agnes Joy eftir Silju Hauksdóttur og Pabbahelgar eftir Nönnu Kristínu Magnúsdóttur koma þar á eftir með tíu tilnefningar hvor.

Til stóð að verðlaunaafhendingin færi fram þann 20. mars, en vegna heimsfaraldursins var henni frestað. Nú er okkur hinsvegar ekkert að vanbúnaði. 

Hér má finna allar tilnefningar í öllum flokkum.