Á döfinni
Edduverðlaunin 2021 verða veitt með haustinu, kosning hefst 27. apríl
Stjórn ÍKSA hefur afráðið að Edduverðlaunin 2021 verði veitt með haustinu með það að markmiði að halda hefðbundna Edduhátíð.
Þegar nær dregur verður tilkynnt um útfærslu á verðlaunaafhendingunni og sjónvarpsútsendingu í tengslum við hana.
Tilkynnt var um tilnefningar til Edduverðlaunanna þann 26. mars síðastliðinn. Netvarp Eddunnar mun opna fyrir akademíumeðlimi þriðjudaginn 20. apríl. Akademíumeðlimir geta kosið á tímabilinu 27. apríl - 4. maí 2021.
Niðurstöður kosninga verða ekki gerðar opinberar fyrr en við afhendingu verðlaunanna í haust.