Um KMÍ
Á döfinni

17.2.2024

Eðvarð Egilsson hlýtur norrænu kvikmyndatónskáldaverðlaunin

Eðvarð Egilsson hlýtur Hörpu-verðlaunin fyrir tónlist sína við kvikmyndina Smoke Sauna Sisterhood, í leikstjórn eistnesku kvikmyndagerðarkonunnar Önnu Hints. Verðlaunin voru afhent 17. febrúar á Nordic Film Music Days sem fer fram samhliða alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Berlín. 

Þetta var annað árið í röð sem Eðvarð er tilnefndur til verðlaunanna, en hann, ásamt Páli Ragnari Pálssyni, hlaut tilnefningu fyrir tónlistina við kvikmyndina Skjálfta í leikstjórn Tinnu Hrafnsdóttur árið 2023.

Þetta er í fjórða sinn sem íslenskt kvikmyndatónskáld hlýtur verðlaunin. Davíð Þór Jónsson hlaut þau síðast, árið 2019, fyrir tónlistina í Kona fer í stríð og Daníel Bjarnason hlaut þau árið 2018 fyrir tónlistina í Undir trénu. Atli Örvarsson hlaut verðlaunin árið 2016 fyrir tónlist sína í kvikmyndinni Hrútar. Jóhann Jóhannsson hlaut sama ár heiðursverðlaun.

Samtök norrænna kvikmyndatónskálda stofnuðu til Hörpu-verðlaunanna árið 2009 með það að markmiði að beina kastljósinu að norrænu hæfileikafólki á sviði kvikmyndatónlistar og leiklistar.