Eggið eftir Hauk Björgvinsson vinnur til verðlauna á kvikmyndahátíðinni í Tampere
Stuttmyndin Eggið eftir Hauk Björgvinsson vann til verðlaunanna Best Genre Film í flokknum Generation XYZ á kvikmyndahátíðinni í Tampere, Finnlandi. Hátíðin, sem er stærsta stuttmyndahátíðin á Norðurlöndunum, fór fram dagana 9. - 13. mars.
Eggið segir frá Gunnari og Önnu sem búa í litlu samfélagi sem hverfist um að útrýma ástarsorg með því að allir fái úthlutað nýjum maka á 7 ára fresti í Ástarlottóinu. Líf án ástarsorgar virðist sem himnaríki á jörðu en dystópískur raunveruleikinn blasir við þegar Gunnar og Anna verða ástfanginn upp fyrir haus og standa frammi fyrir úthlutun á nýjum maka.
Framleiðendur myndarinnar eru Tinna Proppé og Haukur Björgvinsson fyrir Reykjavík Rocket og meðframleiðendur eru Kjartan Þór Þórðarson, Hilmar Sigurðsson og Rob Tasker hjá Sagafilm. Með aðalhlutverk fara Bríet Ísis Elfar og Jóhann Kristófer Stefánsson.
Allar nánari upplýsingar um kvikmyndahátíðina í Tampere má finna á heimasíðu hátíðarinnar.