Um KMÍ
Á döfinni

20.6.2025

Einskonar ást sýnd á virtum alþjóðlegum hinsegin hátíðum

Kvikmynd Sigurðar Antons Friðþjófssonar, Einskonar ást, verður sýnd á Frameline, alþjóðlegu LGBTQ+-hátíðinni í San Francisco, sem fer fram 18.-28. júlí.

Einskonar ást er nútímasaga um fjórar ungar konur. Þær reyna að fóta sig í flóknum ástarsamböndum, en freistingar á borð við sykurpabba og OnlyFans flækja málin. Í leit sinni að bestu útgáfunum af sjálfum sér standa þær frammi fyrir valinu á milli glansmyndar og sannrar ástar.

Myndin verður sýnd á hátíðinni í Vogue-kvikmyndahúsinu í San Francisco 23. júní. Frameline-hátíðin var stofnuð 1977 og er á meðal þekktustu og virtustu hinsegin kvikmyndahátíða heims.

Nýverið var Einskonar ást einnig sýnd á Torino Lovers hátíðinni á Ítalíu. Hátíðin var stofnuð árið 1986 og er elsta hinsegin kvikmyndahátíð Evrópu. Myndin var frumsýnd á Íslandi í apríl 2024.