Frumvarp til laga um menningarframlag streymisveitna í samráðsgátt
Menningar, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið hefur kynnt til samráðs drög að frumvarpi til laga um menningarframlag streymisveitna til eflingar íslenskri menningu og íslenskri tungu.
Með frumvarpinu er lagt til að lögfest verði ný skylda innlendra og erlendra streymisveitna, með starfsemi á Íslandi, til að greiða svokallað menningarframlag. Menningarframlag verði í formi skatts sem nemi 5% af heildartekjum streymisveitna af sölu áskrifta á Íslandi.
Áætlað er að frumvarpið muni skila tekjum sem renni í ríkissjóð, sbr. 37. gr. laga um opinber fjármál, nr. 123/2015. Til að unnt verði að ná því markmiði sem að er stefnt með frumvarpinu miðast tillagan við þá grundvallarforsendu að framlag ríkisins í Kvikmyndasjóð verði hækkað sem þeirri upphæð nemur, með ákvörðun Alþingis sem ákveður skiptingu fjárheimilda til málefnasviða og málaflokka í fjárlögum ár hvert.
Gert er ráð fyrir að áhrif frumvarpsins verði mest á streymisveitur sem fjárfesta lítið eða takmarkað í nýju, íslensku efni.
Að lokinni birtingu í samráðsgátt verður farið yfir umsagnir og ábendingar sem þar berast. Að því loknu verður frumvarpið fullunnið og lagt fram á Alþingi á haustþingi 2025.