Á döfinni
Fundir endurgreiðslunefndar fram að sumarfríi
Næstu fundir endurgreiðslunefndar, sem metur umsóknir í endurgreiðslukerfi kvikmynda, fara fram miðvikudag 18. júní og miðvikudag 25. júní.
Gert er ráð fyrir að nefndin fundi næst, að sumarfríi loknu, um miðjan ágúst.
Erindum má koma til nefndarinnar með tölvupósti á netfangið: endurgreidslur@kvikmyndamidstod.is.
Frekari upplýsingar um endurgreiðslukerfi kvikmynda má finna á vef Kvikmyndamiðstöðvar Íslands.