Um KMÍ
Á döfinni

19.4.2022

Spurningarlisti til umsagnar hagsmunaaðila vegna fyrirhugaðrar innleiðingar á tilskipun um höfundarétt og skyld réttindi á stafræna innri markaðnum

Spurningarlisti til hagsmunaaðila vegna fyrirhugaðrar innleiðingar á tilskipun (ESB) 2019/790 um höfundarétt og skyld réttindi á stafræna innri markaðnum hefur verið birtur á samráðsgátt stjórnvalda. Hagsmunaaðilar eru hvattir til að kynna sér hann áður en frestur til umsagnar rennur út þann 25. maí næstkomandi. 

Í samráðsgáttinni segir að tilskipuninni sé ætlað að samræma reglur um höfundarétt sem varða hinn stafræna innri markað. Ýmis ákvæði hennar gera ráð fyrir samráði við hagsmunaaðila og er spurningalistinn liður í því samráði.

Þar segir ennfremur: Tilskipun (ESB) 2019/790 um höfundarétt og skyld réttindi á stafræna innri markaðnum (stafræna höfundaréttartilskipunin eða DSM tilskipunin) er ætlað að samræma ýmsar reglur um höfundarétt og skyld réttindi sem varða hinn stafræna innri markað og notkun verndaðra verka yfir landamæri.

Tilskipunin tekur til ýmissa mikilvægra atriða eins og undanþágu frá einkarétti höfunda til að tryggja að texta- og gagnanám geti farið fram, sérstaklega hjá rannsókna- og menningarstofnunum; undanþágu vegna notkunar menntastofnana á höfundaréttarvörðu efni við fjarkennslu á netinu; ákvæða sem eiga að tryggja varðveislu menningararfs; ákvæða sem eiga að tryggja notkun menningarstofnana á höfundaréttarvernduðum verkum í þeirra umsjá sem eru ekki lengur fáanleg á almennum markaði (e. out-of-commerce). Þá eru í tilskipuninni ákvæði um nýjan tveggja ára einkarétt útgefenda fréttaefnis vegna netnotkunar á greinum dagblaða og fréttaveitna; heimildarákvæði um rétt útgefenda til hlutdeildar í tekjum vegna notkunar verka sem nýtt eru skv. undanþágum frá höfundarétti; um skyldu stærri þjónustuveitenda efnisdeilingar á netinu (t.d. Google og Facebook) til að tryggja að samningar við rétthafa um not af verkum þeirra séu virtir og til að tryggja að rétthafar geti bannað not ákveðinna verka á þjónustusvæði þjónustuveitenda og að lokum er að finna ákvæði um sanngjarnt endurgjald til höfunda og flytjenda í samningum til hagnýtingar á verkum þeirra eða listflutningi.

Ýmis ákvæði stafrænu höfundaréttartilskipunarinnar gera ráð fyrir samráði við hagsmunaaðila. Slíkt samráð hófst með kynningu á tilskipuninni í höfundaréttarráði á fundi þess 20. janúar sl. Menningarmálaráðuneytið hefur ákveðið að halda samráðinu áfram með því að setja meðfylgjandi skjöl (sjá neðar) í samráðsgátt stjórnvalda og biðja hagsmunaaðila að skoða spurningarlistann og svara því sem þá varðar. Stefnt er að því að nota niðurstöður þessa samráðs við undirbúning á innleiðingarfrumvarpi fyrir tilskipunina. Öllum er frjálst að svara öllum spurningum eða einungis einstökum þeirra.

Til grundvallar þessum spurningalista er þýðing tilskipunarinnar sem þýðingarmiðstöð utanríkisráðuneytisins hefur unnið, sjá meðfylgjandi. Ef einhverjar athugasemdir eða ábendingar eru um þá þýðingu er beðið um að þeim sé skilað samhliða viðbrögðum við spurningarlistanum.

Smelltu hér til að skoða málið nánar/senda inn umsögn.

Niðurstöður samráðsins verða birtar í gáttinni þegar unnið hefur verið úr þeim ábendingum og athugasemdum sem bárust.