Fyrsta kitlan fyrir Volaða land komin út
Kvikmyndin Volaða land, eftir Hlyn Pálmason, verður heimsfrumsýnd á kvikmyndahátíðinni í Cannes 24. maí. Fyrsta kitlan fyrir myndina er komin út.
https://www.youtube.com/watch?v=_72WOvp9VU8
Myndin er sýnd í flokknum Un Certain Regard í aðaldagskrá hátíðarinnar, sem mikill fjöldi kvikmyndagerðarmanna freistar að taka þátt í ár hvert.
Volaða land gerist undir lok 19. aldar og fjallar um ungan danskan prest sem ferðast til Íslands með það að markmiði að reisa kirkju og ljósmynda íbúa eyjunnar í leiðinni. Sérvitur leiðsögumaður leiðir prestinn í gegnum harðneskjulegt landið á hestbaki ásamt hópi heimamanna. Eftir því sem líður á ferðalagið missir presturinn smám saman tökin á veruleikanum, ætlunarverkinu, og eigin siðgæði.
Með aðalhlutverk fer Elliot Crosset Hove, sem lék einnig í fyrstu kvikmynd Hlyns Pálmasonar í fullri lengd, Vetrarbræðrum. Ingvar E. Sigurðsson leikur einnig í myndinni, en hann fór með aðalhlutverkið í annarri kvikmynd Hlyns, Hvítum, hvítum degi, sem einnig var sýnd á kvikmyndahátíðinni í Cannes 2019, Semaine de la Critique hluta hátíðarinnar.