Um KMÍ
Á döfinni

11.5.2023

Guðrún Edda Þórhannesdóttir og Melkorka Pitt valdar til þátttöku í vinnustofu Torino Film Lab – NEXT Feature Film

Verkefni Guðrúnar Eddu Þórhannesdóttur og Melkorku Pitt, Suðurglugginn (South Window) sem er byggt á samnefndri bók Gyrðis Elíassonar, er eitt af 20 alþjóðlegum verkefnum alls staðar að úr heiminum sem valin hafa verið inn á vinnustofu Torino Film Lab – NEXT Feature Film.

Guðrún Edda er kvikmyndaframleiðandi með BA og MA gráður frá Cambridge háskóla í bókmenntum og sögu. Melkorka er nýútskrifuð leikkona með BA gráðu frá Tisch School of the Arts NYU.

Markmið Torino Film Lab er að leiða saman fólk, menningu og hugmyndir til að þróa frumlegar og einstakar sögur til að miðla til framtíðar. TFL NEXT – Feature Film miðar að því að styrkja nýja kynslóð hugsandi og nýstárlegra kvikmyndagerðarmanna.

Vinnusmiðjunni er beint að teymum alþjóðlegra fagaðila, sem vilja efla tækni sína og færni til að þróa og framleiða öflugt kvikmyndaverkefni. Vinnustofan er sambland af einkatímum, hóptímum og meistaranámskeiðum, sem miða að því að innleiða þá sérfræðiþekkingu og færni sem nauðsynleg er til að skrifa gott handrit að leikinni kvikmynd og til að öðlast dýpri skilning á kvikmyndalistinni.

Ljósmynd: Einar Snorra / aðsend