Á döfinni
Haapsalu Horror & Fantasy Film Festival óskar eftir umsóknum
Haapsalu Horror & Fantasy kvikmyndahátíðin óskar eftir umsóknum. Gjaldgengar eru allar kvikmyndir í fullri lengd og stuttmyndir frumsýndar eftir 1. janúar 2016. Hátíðin er svokölluð „genre“ hátíð og óskar því eftir hryllingsmyndum, vísindaskáldsögum, fantasíum eða samblandi af þessu þrennu. Umsóknarfrestur rennur út 25. mars 2017.
Haapsalu Horror & Fantasy hátíðin mun fara fram í 12. skipti í ár í Haapsalu, sjávarplássi á vesturströnd Eistlands frá 28. – 30. apríl.
Allar nánari upplýsingar Haapsalu hátíðina og hvernig skuli sækja um er að finna á heimasíðu hátíðarinnar. Einnig er hægt að senda tölvupóst á netfangið submissions@hoff.ee