Hækkum rána hlýtur ECFA heimildamyndaverðlaunin
Hækkum rána, heimildamynd undir leikstjórn Guðjóns Ragnarssonar, vann til ECFA verðlaunanna fyrir bestu evrópsku heimildamyndina fyrir börn. ECFA heimildamyndaverðlaunin eru ætluð til að vekja athygli á gæða efni sem framleitt er fyrir börn og ungmenni. Verðlaunaafhending fór fram þann 12. febrúar í Berlín og Margrét Jónasdóttir, framleiðandi myndarinnar, tók á móti verðlaununum.
Árið 2015 var körfuboltaflokkur fyrir stelpur stofnaður á Íslandi. Þjálfarinn var óvenjulegur og hækkaði í sífellu rána. Þær voru þjálfaðar eins og leiðtogar utan vallar og afrekskonur innan vallar. Þær settu sér snemma það markmið að keppa ávallt við þá bestu og voru sigursælar í drengja- og stúlknamótum. Hækkum rána er saga 8-13 ára stúlkna sem vildu breyta viðmiðum í kvennakörfu á Íslandi. Með miklum fórnarkostnaði tókust þær á við það mótlæti sem því fylgdi.
Hækkum rána var framleidd af Margréti fyrir Sagafilm og meðframleidd af Outi Rousu fyrir finnska framleiðslufyrirtækið Pystymetsä Oy. Myndin hefur ferðast víða á hátíðum síðan hún var frumsýnd á heimildamyndahátíðinni Hot Docs í apríl á síðasta ári. Myndin hlaut m.a. tvenn verðlaun á barnakvikmyndahátíðinni Filem'on í Belgíu, sem besta myndin valin af 8-13 ára dómnefnd og besta heimildamyndin valin af faglegri dómnefnd. Þá hefur myndin verið sýnd í kvikmyndahúsum í Finnlandi og er að fara af stað í dreifingu í Bandaríkjunum.
Hækkum rána var sýnd í Sjónvarpi Símans Premium á seinasta ári og verður fljótlega sýnd á RÚV.
ECFA eru samtök sem leggja áherslu á gæða barna- og ungmennaefni. Meðlimir samtakanna, sem eru næstum 150, samanstanda af fyrirtækjum, stofnunum og einstaklingum í kvikmyndageiranum.