Um KMÍ
Á döfinni

28.5.2025

Heimildamyndin Bogancloch seld til Bandaríkjanna

Heimildamyndin Bogancloch, í leikstjórn Ben Rivers, hefur verið seld til Bandaríkjanna. Kvikmyndaritið Variety greinir frá, en það er dreifingarfyrirtækið Cinema Guild sem festi kaup á sýningarrétinum. Rediance fer með sölu myndarinnar.

Myndin er bresk, þýsk og íslensk samframleiðsla og hlaut framleiðslustyrk frá Kvikmyndamiðstöð Íslands. Hanna Björk Valsdóttir er einn af framleiðendum myndarinnar fyrir Akkeri Films og Björn Viktorsson sá um hljóðvinnslu.

Bogancloch er listræn heimildamynd skotin á 16mm filmu og fjallar um líf Jake Williams í afskekktum skógi í Skotlandi. Hún er sjálfstætt framhald af Two Years at Sea (2011) sem hlaut mikið lof gagnrýnenda og vann fjölmörg alþjóðleg verðlaun.

Myndin var heimfsfrumsýnd á kvikmyndahátíðinni í Locarno 2024, einni virtustu hátíð heims. Hún hefur síðan verið sýnd á alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Edinborg, Viennale-hátíðinni, CPH:DOX, Festival dei Popoli og Doc Fortnight sem MoMA stendur fyrir.