Heimildamyndin Draumar, konur og brauð verðlaunuð í Glasgow
Heimildamyndin Draumar, Konur og Brauð í leikstjórn Sigrúnar Völu Valgeirsdóttur og Svanlaugar Jóhannsdóttur, hlaut verðlaun fyrir „Outstanding Achievment“ á verðlaunahátíð European Film Union sem fram fór í Glasgow í Skotlandi 1. desember.
Myndin var einnig tilnefnd í flokki á vegum International Indie Film & Screenplay Festival fyrir bestu tónlistina. Agnar Már Magnússon semur stef og útsetur flest tónlistaratriðin, en Una Stefánsdóttir á tvö lög í myndinni og þar af annað sem er frumsamið fyrir verkið. Kvennakórinn Ljósbrá syngur einnig lag eftir Magnús Eiríksson í útsetningu kórstjórans Ingibjargar Erlingsdóttur.
Svanlaug Jóhannsdóttir og Sigrún Vala Valgeirsdóttir,
handritshöfundar og leikstjórar, í Trades Hall of Glasgow.
Fyrr á árinu hlaut myndin viðurkenningarnar „Best Inspirational Film“ á Oniros-verðlaunahátíðinni í New York og bronsverðlaun sem besta heimildamyndin á Hollywood Independent Filmmakers Awards & Festival.
Þá fór hluti aðstandenda á Nordisk Panorama í haust, en þar var myndin valin inn á Nordisk Panorama Online Market þar sem hún er kynnt fyrir aðstandendum kvikmyndahátíða og sölu- og dreifingaraðilum.
Draumar, konur og brauð var frumsýnd í Bíó Paradís fyrr á þessu ári og verður sýnd á RÚV á því næsta.