Um KMÍ
Á döfinni

18.9.2025

Heimildamyndin Síðasta verk Gunnars frumsýnd á RIFF

Heimildarmyndin Síðasta verk Gunnars, um hönnunarfeðginin þau Gunnar Magnússon og Tinnu Gunnarsdóttur, verður sýnd á RIFF 2025.

Gunnar Magnússon er einn þekktasti Íslendinga. Verk hans og húsgögn hafa vakið mikla athygli erlendis og hefur hann starfað með nokkrum af fremstu hönnuðum Dana, eins og Børge Mogensen, auk þess að hafa náð góðum árangri á alþjóðlegum hönnunarsamkeppnum á sjöunda áratugnum. Hann sneri heim til Íslands með fjölskylduna 1964 þar sem hann stofnaði eigin teiknistofu og vann að hönnun í fjóra áratugi fyrir bæði fjölskyldur og fyrirtæki, til dæmis Hótel Holt, Kennaraháskólann, Alþingi og Íslandsbanka.

Leikstjóri Síðasta verks Gunnars er Mathias Skaarup. Í myndinni er veitt innsýn í líf og störf þessa frumherja í íslenskri hönnunarsögu. 85 ára að aldri hefst Gunnar handa við að skapa sitt síðasta verk, með Tinnu dóttur sína og hönnuð sér við hlið. Saman leggja þau af stað í þá vegferð að endurtúlka eitt af sígildum verkum Gunnars, og ætla sér að draga saman ævilangt handverk hans og starf.

Þegar heilsu Gunnars hrakar skyndilega stendur Tinna ein eftir með það fyrir höndum að ljúka verkinu – og á sama tíma þarf hún að horfast í augu við yfirvofandi fráfall föður síns.

Myndin verður sýnd á RIFF, alþjóðlegri kvikmyndahátíð í Reykjavík, 30. september.