Um KMÍ
Á döfinni

5.2.2025

Heimildamyndin Sigurvilji frumsýnd

Sigurvilji, ný íslensk heimildamynd um Sigurbjörn Bárðarson tamningameistara og landsliðsþjálfara, verður frumsýnd í Laugarásbíói laugardaginn 8. febrúar.

Sigurbjörn er einn verðlaunaðasti íþróttamaður íslenskrar íþróttasögu. Hann hóf ferilinn ungur með tvær hendur tómar en var fljótur að læra af hestamönnum og bílabröskurum hvernig hann ætti að ná árangri og komast á toppinn. Sigurvilji varpar ljósi á mikinn sigurvegara, dýravin og baráttumann sem hefur áratugum saman verið í fremstu röð af eigin verðleikum. Í myndinni er farið yfir sögu þessa merka íþróttamanns og rýnt í persónueinkennin. Þá er einnig skyggnst bak við tjöldin í þeim verkefnum sem hann glímir við í dag.

https://www.youtube.com/watch?v=AyjzeIrWNlE

Framleiðendur Sigurvilja eru Áslaug Pálsdóttir og Guðrún Hergils Valdimarsdóttir en saman reka þær framleiðslufyrirtækið Hekla Films. Hrafnhildur Gunnarsdóttir fer með leikstjórn og stjórn kvikmyndatöku.