Um KMÍ
Á döfinni

12.8.2024

Heimildamyndin Tímabundið skjól heimsfrumsýnd í Toronto

Heimildamynd Anastasiiu Bortuali, Tímabundið skjól, verður heimsfrumsýnd á  TIFF, Alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Toronto, sem fer fram 5. til 15. september. 

https://www.youtube.com/watch?v=u63c9-Fn-vA

Anastasiia er úkraínsk kvikmyndagerðarkona sem fékk hæli á Íslandi eftir innrásina í Úkraínu 2022. Í myndinni segir hún frá úkraínskum flóttamönnum sem dvelja á Ásbrú í Reykjanesbæ, þar sem þeir bíða og sjá hvernig framtíð þeirra þróast.

Anastasiia Bortuali, leikstjóri Tímabundins skjóls.

Framleiðandi myndarinnar er Helgi Felixson. Framleiðslufyrirtæki eru Iris Film og Felix Film.