Um KMÍ
Á döfinni

6.6.2025

Hildur Guðnadóttir hlýtur heiðursverðlaun á kvikmyndahátíðinni í Zurich

Hildur Guðnadóttir, kvikmyndatónskáld, verður heiðruð á kvikmyndahátíðinni í Zurich fyrir starf sitt. Verðlaunin verða afhent 2. október við hátíðlega athöfn á hátíðinni.

„Hildur Guðnadóttir er eitt frumlegasta tónskáld samtímans,“ segir Christian Jungen, listrænn stjórnandi Zurich-hátíðarinnar. „Hún er brautryðjandi á sínu sviði og fyrirmynd ungs listafólks um heim allan.“

Hildur er margverðlaunað kvikmyndatónskáld. Hún hlaut Óskarsverðlaun 2020 fyrir tónlist sína við kvikmyndina Joker, í leikstjórn Todds Phillips, og 2019 hlaut hún Emmy-verðlaun fyrir tónlistina í HBO-þáttunum Chernobyl. Hún samdi einnig tónlistina við kvikmyndina Tár, í leikstjórn Todds Fields og kvikmynd Kenneths Branaghs, A Haunting in Venice.

Væntanleg verkefni Hildar eru meðal annars tónlist við kvikmyndina Hedda í leikstjórn Niu DaCosta, auk tónlistar við kvikmyndirnar 28 Years Later og 28 Years Later: The Bone Temple, í leikstjórn Danny Boyle og Niu DaCosta.