Um KMÍ
Á döfinni

1.11.2016

Hjartasteinn hlýtur þrenn verðlaun í Kænugarði

Hjartasteinn, fyrsta kvikmynd Guðmundar Arnars Guðmundssonar í fullri lengd, hlaut þrenn verðlaun á hinni nýafstöðnu Molodist kvikmyndahátíð í Kænugarði í Úkraínu. Myndin fékk áhorfendaverðlaun hátíðarinnar, FIPRESCI verðlaun samtaka gagnrýnenda og hlaut Baldur Einarsson sérstaka viðurkenningu fyrir hlutverk sitt - en var hann eini leikarinn sem hlaut verðlaun á hátíðinni. Anton Máni Svansson, framleiðandi Hjartasteins, var viðstaddur hátíðina og veitti verðlaununum viðtöku.

Hjartasteinn var heimsfrumsýnd í Venice Days dagskrá kvikmyndahátíðarinnar í Feneyjum í september og vann þar til Queer Lion verðlauna hátíðarinnar. Eftir það hefur hún tekið þátt á fjölda virtra alþjóðlegra kvikmyndahátíða, m.a. í Toronto í Kanada og Busan í Suður Kóreu og alls  unnið til átta alþjóðlegra verðlauna.

Á Facebook síðu Hjartasteins má sjá myndband af Antoni Mána taka við verðlaununum.

Hjartasteinn verður frumsýnd í kvikmyndahúsum hérlendis um áramótin.

Um myndina

Hjartasteinn gerist yfir sumar í litlu sjávarþorpi á Íslandi. Sagan fjallar um sterka vináttu tveggja drengja sem eru að taka sín fyrstu skref inn í unglingsárin og uppgötva ástina.
Tökur fóru fram haustið 2015 í Borgarfirði eystri, Seyðisfirði, Vopnafirði og Dyrhólaey.

Guðmundur Arnar Guðmundsson leikstýrir og skrifar handritið að Hjartasteini. Framleiðendur Hjartasteins eru Anton Máni Svansson og Guðmundur Arnar Guðmundsson fyrir Join Motion Pictures og Lise Orheim Stender og Jesper Morthorst fyrir hið danska framleiðslufyrirtæki SF Studios Production. Stjórn kvikmyndatöku er í höndum Norðmannsins Sturla Brandth Grøvlen, Danirnir Anne Østerud og Janus Billeskov Jansen sjá um klippingu og Daninn Kristian Eidnes Andersen semur tónlist myndarinnar. Sölufyrirtæki myndarinnar á alþjóðavísu er hið þýska Films Boutique og SENA sér um innlenda dreifingu hennar.

Myndin var gerð með stuðningi Kvikmyndamiðstöðvar Íslands, Dönsku kvikmyndastofnunarinnar og Evrópska kvikmyndasjóðsins Eurimages.

Með helstu hlutverk fara ungstirnin Baldur Einarsson, Blær Hinriksson, Diljá Valsdóttir, Katla Njálsdóttir, Jónína Þórdís Karlsdóttir, Rán Ragnarsdóttir, Daníel Hans Erlendsson, Theodór Pálsson og Sveinn Sigurbjörnsson ásamt þeim þaulreyndu Nínu Dögg Filippusdóttur, Sveini Ólafi Gunnarssyni, Nönnu Kristínu Magnúsdóttur, Søren Malling og Gunnari Jónssyni.

Guðmundur Arnar Guðmundsson hefur getið sér góðs orðs sem leikstjóri og handritshöfundur á undanförnum árum fyrir margverðlaunaðar stuttmyndir sínar. Þar hefur Hvalfjörður reynst vera sérlega sigursæl, enda unnið til 45 verðlauna á kvikmyndahátíðum víðs vegar um heiminn, þar á meðal sérstök dómnefndarverðlaun í aðalkeppni kvikmyndahátíðarinnar í Cannes árið 2013.

Þess má geta að stuttmyndir Guðmundar Arnars hafa áður unnið til verðlauna í Gent og Chicago, tveggja af þeim kvikmyndahátíðum sem Hjartasteinn tekur nú þátt á. Árið 2013 var Hvalfjörður valin besta stuttmyndin í Gent og hlaut sérstök dómnefndarverðlaun í Chicago og árið 2014 var Ártún valin besta leikna stuttmyndin í Chicago.

Nánari fréttir af Hjartasteini er að finna á Facebook síðumyndarinnar.

Nánari upplýsingar um myndina er að finna á Kvikmyndavefnum.

Nánari upplýsingar um Guðmund Arnar og fyrri verk hans er einnig að finna á Kvikmyndavefnum.