Um KMÍ
Á döfinni

7.9.2022

Hreiður verðlaunuð á kvikmyndahátíðinni í Óðinsvéum

Stuttmynd Hlyns Pálmasonar, Hreiður, hlaut nýverið verðlaun sem besta danska stuttmyndin á alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Óðinsvéum í Danmörku.

Hreiður segir frá systkinum sem byggja saman trjákofa. Í myndinni er fylgst með lífi þeirra og ferli í heilt ár í gegnum hamingju og þjáningu, vetur og sumar, ljós og myrkur.

Hlynur Pálmason leikstýrir og skrifar handritið að myndinni og framleiðendur eru Anton Máni Svansson fyrir íslenska framleiðslufyrirtækið Join Motion Pictures og Katrin Pors, Eva Jakobsen og Mikkel Jersin fyrir danska framleiðslufyrirtækið Snowglobe.