Um KMÍ
Á döfinni
  • Idfa_LOGO

22.1.2016

IDFA Academy Summer School óskar eftir umsóknum

Alþjóðlega heimildamyndahátíðin í Amsterdam (IDFA) óskar eftir umsóknum fyrir Academy Summer School. IDFA Academy Summer School er þjálfunarprógramm ætlað upprennandi kvikmyndagerðarmönnum á sviði heimildamynda. Sumarskólinn fer fram í Amsterdam frá 4. til 9. júlí. og umsóknarfrestur rennur út 1. mars.

IDFA sumarskólinn er ætlaður leikstjórum sem eru að gera sína fyrstu eða aðra heimildamynd. Verða 10 verkefni á þróunarstigi og 6 sem eru komin á grófklippsstig valin til þátttöku. Kvikmyndagerðarmenn með skapandi heimildaverkefni geta einnig sótt um þátttöku.

Markmiðið með sumarskólanum er að bæta uppbyggingu frásagnar í heimildamyndum. Í sumarskólanum gefst þátttakendum tækifæri til að vinna með virtum kvikmyndagerðarmönnum og öðru fagfólki úr kvikmyndabransanum. Bæði er unnið með einstaklingum og í hópum. Hægt er að velja um tvær tegundir þjálfunar; þróun handrits eða klippingarráðgjöf.

Allar nánari upplýsingar um þjálfunarprógrammið og hvernig skuli sækja um má nálgast áheimasíðu IDFA.