Um KMÍ
Á döfinni

1.3.2017

IDFAcademy Summer School óskar eftir umsóknum

Alþjóðlega heimildamyndahátíðin í Amsterdam (IDFA) óskar eftir umsóknum fyrir IDFAcademy Summer School. ID Academy Summer School er þjálfunarprógramm ætlað upprennandi kvikmyndagerðarmönnum á sviði heimildamynda. Sumarskólinn fer fram í Amsterdam frá 3. til 8. júlí. og umsóknarfrestur rennur út 15. mars.

IDFA sumarskólinn er ætlaður leikstjórum sem eru að gera sína fyrstu eða aðra heimildamynd. Um 16 verkefni hvaðanæva að úr heiminum verða valin til þátttöku.

Markmiðið með sumarskólanum er að bæta uppbyggingu frásagnar í heimildamyndum. Í sumarskólanum gefst þátttakendum tækifæri til að vinna með virtum kvikmyndagerðarmönnum og öðru fagfólki úr kvikmyndabransanum. Bæði er unnið með einstaklingum og í hópum. Hægt er að velja um tvær tegundir þjálfunar; þróun handrits eða klippingarráðgjöf.

Allar nánari upplýsingar um þjálfunarprógrammið og hvernig skuli sækja um má nálgast á heimasíðu IDFA.