Á döfinni
Ingvar E. Sigurðsson verðlaunaður í Belgíu
Ingvar E. Sigurðsson var valinn besti leikarinn á stuttmyndahátíðinni BSFF í Brussel í Belgíu, sem fram fór 24. apríl - 3. maí. Verðlaunin hlýtur hann fyrir hlutverk sitt í stuttmynd Rúnars Rúnarssonar O (Hringur).
O (Hringur) er ljóðræn frásögn af manni sem vill standa sig en hans helsta hindrun er hann sjálfur.
Myndin var frumsýnd á kvikmyndahátíðinni í Feneyjum 2024. Hún hefur síðan verið sýnd á fjölda kvikmyndahátíða víða um heim. Þetta eru níundu verðlaun myndarinnar og er hún einnig komin í forval Evrópsku kvikmyndaverðlaunanna 2025. Framleiðandi myndarinnar er Heather Millard hjá Compass Films.