Um KMÍ
Á döfinni

28.5.2025

Innleiðing samnorrænna sjálfbærnistaðla hefst í ársbyrjun 2026

Kynning á Nordic Ecological Standard (NES), nýjum samnorrænum sjálfbærnistöðlum fyrir kvikmynda- og sjónvarpsframleiðslu, fór fram í Bíó Paradís, þriðjudaginn 27. maí.

„Markmiðið er að stuðla að umhverfisvænni kvikmyndagerð,“ segir Brynhildur Birgisdóttir, sérfræðingur á framleiðsludeild Kvikmyndamiðstöðvar Íslands og fulltrúi í vinnuhópi The Five Nordics um þróun og innleiðingu staðlanna.

„Tilgangurinn með samræmdum stöðlum, þvert á öll Norðurlöndin, er að vera skrefi á undan. Við viljum gera framleiðendum auðveldara fyrir, þannig að þeir þurfi aðeins að uppfylla eina útgáfu af sjálfbærnistöðlum, í stað margra ólíkra eftir því hvar þeir sækja sitt fjármagn.“

Prófanir í samstarfi við framleiðendur

NES-staðlarnir verða formlega kynntir á Norðurlöndum í ágúst og þá verður hægt að sækja upplýsingar, gögn og eyðublöð tengd stöðlunum á nýjum vef.

Kvikmyndamiðstöð Íslands fer af stað í prófanir á stöðlunum í samstarfi við íslenska framleiðendur sem hefja framleiðslu veturinn 2025-2026. „Þannig áttum við okkur betur á því hvar áskoranirnar liggja. Hvað er hægt að gera, hvað er ekki hægt að gera og lærum betur á staðlana í sameiningu,“ segir Brynhildur.

Brynhildur Birgisdóttir.

Stefnt er að því að innleiða NES-staðlana formlega á öllum kvikmyndamiðstöðvum Norðurlanda í byrjun næsta árs. Það þýðir að styrkþegar vegna framleiðslustyrkja hjá Kvikmyndamiðstöð Íslands skila inn NES-skýrslu ásamt kolefnisútreikningum áður en gengið er frá úthlutunarsamningi við lok framleiðslu. 

Brynhildur segir að farið verði í mjúka sjósetningu staðlanna fyrst um sinn. „Það þýðir að við förum aðeins fram á það að framleiðendur sýni fram á að þeir hafi gert sitt besta til að uppfylla staðlana og færi skýr rök fyrir því hvers vegna staðlar eru ekki uppfyltir, ef svo ber undir.“

Hér má sækja upplýsingar um NES-staðlana eins og þeir líta út í dag.

Hjálpa kvikmyndagerðarmönnum að verða sjálfbærir

Karolína Stefánsdóttir og Sigríður Rósa Bjarnadóttir frá ráðgjafafyrirtækinu USE SEE fjölluðu um sjálfbærni í kvikmyndagerð út frá íslenskum aðstæðum á viðburðinum. 

Helsta verksvið USE SEE er gerð áætlana og ráðgjöf í sjálfbærni, ásamt því að vera umboðsaðili fyrir Green Producers Club sem er norræn kolefnisreiknivél sem er aðlöguð að íslenskum aðstæðum og orkusamsetningu. Fyrirtækið hefur einnig þróað námsefni um sjálfbæra starfshætti og framleiðslu fyrir kvikmyndagerð og komið að kennslu í þeim efnum.

Sigríður Rósa Bjarnadóttir og Karólína Stefánsdóttir.

„Við hjálpum fólki að verða sjálfbær,“ segir Karólína, sem undirstrikar að græn umbreyting heppnist ekki nema allir leggi hönd á plóg. „Sjálfbærni er vegferð sem við verðum að fara sameiginlega í gegnum. Það gengur til dæmis ekkert ef aðeins leikstjórinn vill vera sjálfbær en framleiðandinn alls ekki. Við getum komið inn, lært saman og fundið út hvernig best sé að nálgast hlutina.“

Forsíðuljósmynd: Við tökur á Fjallinu, í leikstjórn Ásthildar Kjartansdóttur, fyrstu kvikmyndinni til að fá sjálfbærnivottun á Íslandi.