Um KMÍ
Á döfinni

11.2.2022

Ísland áberandi á kvikmyndahátíðinni í Berlín

Alþjóðlega kvikmyndahátíðin í Berlín fer fram í 72. skipti dagana 10. - 20. febrúar. Listrænir stjórnendur hátíðarinnar hafa valið fjórar íslenskar myndir í aðaldagskrá hátíðarinnar, en aldrei hafa jafn margar íslenskar myndir tekið þátt í dagskránni.

Sjá einnig: Ísland áberandi á kvikmyndahátíðinni í Berlín


Panorama


Berdreymi, ný íslensk kvikmynd eftir Guðmund Arnar Guðmundsson, verður heimsfrumsýnd þann 11. febrúar í Panorama flokki hátíðarinnar í Berlín, sem er lýst sem flokki fyrir heillandi og ögrandi kvikmyndir sem líklegar eru til vinsælda á meðal áhorfenda.

IFC127_FrettabrefBerlinale-isl2

Berdreymi segir frá Adda, unglingsstrák í Reykjavík sem alinn er upp af móður með skyggnigáfu. Einn daginn ákveður Addi að taka eineltisfórnarlamb undir sinn verndarvæng og inn í vinahóp slagsmálahunda. Án eftirlits, leika strákarnir sér að valdbeitingu og ofbeldi en kynnast einnig djúpri vináttu. Þegar hegðun strákana stigmagnast yfir í lífshættulega atburði, fer Addi að upplifa eigin skynjanir. Mun innsæi hans beina vinunum á öruggari braut eða munu strákarnir sökkva lengra inn í heim ofbeldis?

Berdreymi verður frumsýnd hér á landi þann 22. apríl. 

Lesa meira


Berlinale Special


Stuttmyndin Hreiður eftir Hlyn Pálmason verður sýnd Berlinale Special hluta hátíðarinnar. Hreiður var sérvalin af Carlo Chatrian listrænum stjórnanda hátíðarinnar og verður heimsfrumsýnd þann 14. febrúar á sérstakri sýningu ásamt stuttmyndinni Terminal Norte eftir Lucrecia Martel.

IFC127_FrettabrefBerlinale-isl7

Hreiður er saga af systkinum sem byggja saman trjákofa. Við fylgjumst með lífi þeirra og ferli í heilt ár í gegnum hamingju og þjáningu, vetur og sumar, ljós og myrkur.

Lesa meira


Berlinale Series 


Sjónvarpsþáttaröðin Svörtu sandar, undir leikstjórn Baldvins Z, tekur þátt í Berlinale Series hluta hátíðarinnar. Alls voru sjö þáttaraðir valdar inn í dagskrána og munu fyrstu tveir þættirnir af Svörtu söndum vera frumsýndir alþjóðlega á hátíðinni þann 12. febrúar.

IFC127_FrettabrefBerlinale-isl4

Aníta, þrítug lögreglukona, neyðist aftur á æskuslóðirnar sem hún flúði fyrir 14 árum. Uppgjör við móður hennar er óumflýjanlegt en líkfundur af ungri konu kollvarpar öllu. Aníta sogast niður dimman hyl fortíðar í leit að mögulegum fjöldamorðingja og uppgjörið breytist í martröð.

Svörtu sandar var frumsýnd hér á landi þann 25. desember síðastliðinn á Stöð 2.

Lesa meira


Berlinale Special Gala


Kvikmyndin Against the Ice eftir Peter Flinth, verður frumsýnd þann 15. febrúar á hátíðinni í flokknum Berlinale Special Gala. Baltasar Kormákur og RVK Studios framleiddu myndina fyrir Netflix, í sam­starfi við Nikola­j Coster-Waldau.

IFC127_FrettabrefBerlinale-isl3

Myndin er byggð á sannsögulegum atburðum; ótrúlegri þrekraun tveggja pólfara sem urðu innlyksa á Grænlandi um langt skeið snemma á 20.öldinni. Myndin var að stærstum hluta unnin hér á landi og með aðal­hlut­verk fara Nikola­j Coster-Waldau og Joe Cole. Með önnur hlut­verk fara m.a. Charles Dance, Heiða Rún Sigurðar­dóttir og Gísli Örn Garðars­son. Kjartan Kjartansson sá um hljóðhönnun og Volker Bertelmann um tónlist. Tónlistin var flutt af SinfoniaNord og tekin upp í Hofi á Akureyri, ásamt kammerkórnum Hymnodia. Þá var eftirvinnsla myndarinnar alfarið unnin á Íslandi í samvinnu við Trickshot.

Against the Ice
kemur út á streymisveitunni Netflix þann 2. mars næstkomandi.

Lesa meira


EFM markaðssýningar


Markaður Berlínarhátíðarinnar (European Film Market) fer fram í stafrænu formi þetta árið þar sem eftirfarandi myndir verða sýndar fyrir fagaðila.

IFC127_FrettabrefBerlinale-isl6

Myndin fjallar um leynilögguna Bússa sem leikinn er af Auðunni Blöndal. Bússi er einn besti lögreglumaður Reykjavíkur sem er í mikilli baráttu við sjálfan sig á sama tíma og hann berst við hættulegustu glæpamenn landsins.

Lesa meira


IFC127_FrettabrefBerlinale-isl5_1644500472574

Minningar sem Sögu hafði tekist að bæla niður sem barn koma skyndilega upp á yfirborðið og neyða hana til að horfast í augu við sannleikann um sjálfa sig.

Skjálfti verður frumsýnd hér á landi þann 31. mars.

Lesa meira


IFC127_FrettabrefBerlinale-isl8_1644500492083

Dýraverndunarsinninn Sonja finnst látin við fjöruborð þar sem hvalveiðar eru að hefjast, blaðamaðurinn Hannis Martinsson skekur einangrað samfélag Færeyja með rannsókn sinni á voflegu láti ungu konunnar.

Trom kemur út á streymisveitunni Viaplay þann 13. febrúar.

Lesa meira


Þórarinn Guðnason tilnefndur til Norrænu kvikmyndatónskáldaverðlaunanna


271762818_2248093752012173_4916451677898445466_n

Norrænu kvikmyndatónskáldaverðlaunin fara fram í Berlín dagana 12. - 13. febrúar. Þar hefur tónlist Þórarins Guðnasonar við kvikmyndina Dýrið eftir Valdimar Jóhansson verið valin sem framlag Íslands til Hörpu verðlaunanna, sem eru árlega veitt einu tónskáldi af Norðurlöndunum. Verðlaunaafhendingin fer fram laugardaginn 12. febrúar.


Nýjar íslenskar myndir og verk í vinnslu


Kvikmyndamiðstöð Íslands heldur úti gagnagrunni þar sem er að finna upplýsingar um íslenskar kvikmyndir og íslenska kvikmyndagerðarmenn. Nýjustu íslensku myndirnar má til að mynda finna hér.

Skoða nánar verk í framleiðslu hér.
Skoða nánar verk í þróun hér.