Um KMÍ
Á döfinni

16.8.2024

Íslenskar kvikmyndir á alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Haugasundi

Þrjár íslenskar kvikmyndir eru sýndar á alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Haugasundi í Noregi, sem fer fram 17.-23. ágúst.

Ljósbrot, nýjasta kvikmynd Rúnars Rúnarssonar, og Tilverur, kvikmynd Ninnu Pálmadóttur, eru sýndar í aðaldagskrá hátíðarinnar. Snerting í leikstjórn Baltasars Kormáks er sýnd í Nordic Focus-hluta hátíðarinnar.

Þá eru íslensk kvikmyndaverk kynnt á markaðshluta hátíðarinnar, sem fer fram 20.-23. ágúst. Það eru kvikmyndirnar Fjallið, í leikstjórn Ásthildar Kjartansdóttur, og Ljósbrot Rúnars Rúnarssonar. Að auki verður kvikmyndin The Home, í leikstjórn Mattiasar J. Skoglund, kynnt sem verk í vinnslu, en myndin er að hluta framleidd á Íslandi og styrkt af Kvikmyndasjóði.