Um KMÍ
Á döfinni

9.1.2018

Íslenskar myndir á kvikmyndahátíðinni í Gautaborg - Andið eðlilega í keppni

Kvikmyndahátíðin í Gautaborg verður haldin dagana 26. janúar til 5. febrúar og fer nú fram í 41. skipti. Hátíðin, sem er sú stærsta á Norðurlöndunum sýnir tæplega 400 myndir frá 78 löndum. 

Alls verða 7 myndir frá Íslandi á hátíðinni í ár; kvikmyndirnar Andið eðlilega, Undir trénu, Svanurinn, Vetrarbræður ásamt sjónvarpsþáttunum Stellu Blómkvist og stuttmyndunum Frelsun og Cut

Andið eðlilega keppir um Drekaverðlaunin (Dragon Award) fyrir bestu norrænu kvikmynd. Hún er ein af 9 norrænum myndum sem keppa um þessi eftirsóttu verðlaun, en verðlaunaféð er 1 milljón sænskra króna. Myndin verður frumsýnd á Sundance hátíðinni sem fer fram í Park City í Bandaríkjunum 18. janúar n.k.

Kvikmyndirnar Undir trénu eftir Hafstein Gunnar Sigurðsson, Svanurinn eftir Ásu Helgu Hjörleifsdóttur og Vetrarbræður eftir Hlyn Pálmason munu taka þátt í Nordic Light sýningarröð hátíðarinnar. 

Stuttmyndirnar Frelsun eftir Þóru Hilmarsdóttur og Cut eftir Evu Sigurðardóttur munu taka þátt í stuttmyndahluta Nordic Light sýningarraðarinnar. 

Loks mun munu þættir úr sjónvarpsþáttaröðinni Stella Blómkvist eftir Óskar Þór Axelsson verða sýndir sem hluti af sjónvarpsþáttahluta Nordic Light sýningarraðarinnar. Þeir þættir eru einnig tilnefndir til Nordisk Film og TV Fond verðlaunanna. 

Tvö íslensk verkefni í eftirvinnslu munu taka þátt í Work in Progress hluta hátíðarinnar; Kona fer í stríð eftir Benedikt Erlingsson og Tryggð eftir Ásthildi Kjartansdóttur. 

 Allar nánari upplýsingar um hátíðina má finna á heimasíðu þeirra.