Um KMÍ
Á döfinni

27.1.2022

Íslenskar myndir á Kvikmyndahátíðinni í Gautaborg - Dýrið í aðalkeppni

Kvikmyndahátíðin í Gautaborg fer fram í 45. skipti dagana 28. janúar - 6. febrúar og er hátíðin sú stærsta á Norðurlöndunum. Tilkynnt hefur verið um þrjár myndir frá Íslandi sem verða sýndar á hátíðinni í ár. Dýrið keppir um Drekaverðlaunin fyrir bestu norrænu kvikmyndina, Skjálfti verður sýnd í Nordic Light sýningarröð hátíðarinnar og sjónvarpsþáttaröðin Verbúðin keppir um verðlaun fyrir besta handrit sjónvarpsþáttaraða á Norðurlöndunum. 

Þá verða tvö verkefni í þróun kynnt á TV Drama Vision hluta hátíðarinnar. Það eru sjónvarpsþáttaraðirnar Svo lengi sem við lifum, skrifuð af Anítu Briem, og Heima er best eftir Tinnu Hrafnsdóttur.

Dýrið trailer

Dýrið eftir Valdimar Jóhansson er meðal átta norrænna mynda sem keppa um Drekaverðlaunin (Dragon Award) fyrir bestu norrænu kvikmynd á hátíðinni. Drekaverðlaunin eru einkar eftirsótt verðlaun, en verðlaunaféð er 400 þúsund sænskar krónur. Dýrið er á meðal fimmtán kvikmynda sem eru í forvali og gætu fengið tilnefningu til Óskarsverðlauna í flokki alþjóðlegra kvikmynda árið 2022. Myndin er undir leikstjórn Valdimars Jóhannssonar og handrit er eftir Sjón og Valdimar. Framleiðendur myndarinnar eru Hrönn Kristinsdóttir og Sara Nassim fyrir Go to Sheep.


Skjálfti trailer

Skjálfti, sem sýnd verður í Nordic Light hluta hátíðarinnar, var skrifuð og leikstýrt af Tinnu Hrafnsdóttur. Skjálfti var heimsfrumsýnd þann 20. nóvember síðastliðinn á Tallinn Black Nights Film Festival í Eistlandi. Myndin er byggð á skáldsögu Auðar Jónsdóttur og framleidd af Hlín Jóhannesdóttur fyrir Ursus Parvus.


Verbúðin trailer

Sjónvarpsþáttaröðin Verbúðin er tilnefnd til verðlauna fyrir besta handrit dramasjónvarpsþáttaraða á Norðurlöndunum sem Norræni kvikmynda- og sjónvarpssjóðurinn (Nordisk Film & TV Fond) stendur fyrir. Verðlaunin verða afhent á hátíðinni þann 2. febrúar. Gísli Örn Garðarsson, Björn Hlynur Haraldsson og Mikael Torfason eru handritshöfunar Verbúðarinnar og Gísli Örn, Björn Hlynur og María Reyndal leikstýra þáttaröðinni. Framleiðendur eru Nana Alfredsdóttir, Nína Dögg Filippusdóttir, Gísli Örn og Björn Hlynur fyrir Vesturport.


Allar nánari upplýsingar um kvikmyndahátíðina í Gautaborg má finna á heimasíðu hennar.