Íslensku sjónvarpsverðlaunin afhent í fyrsta sinn í október
Íslensku sjónvarpsverðlaunin verða afhent í fyrsta sinn 30. október 2025 við hátíðlega athöfn í Gamla bíói.
Ljósvakamiðlarnir Sjónvarp Símans, Sýn og RÚV standa að verðlaununum, þar sem sjónvarpsefni sem frumsýnt var á stöðvunum árin 2023 og 2024 verður verðlaunað. Þetta kemur fram í tilkynnningu frá aðstandendum verðlaunanna.
Á þessu fyrsta hátíðarkvöldi liggur lengra tímabil undir en ella þar sem ekki hefur verið verðlaunað fyrir allt það sjónvarpsefni sem framleitt hefur verið eftir árið 2022. Þá skildu leiðir Íslensku sjónvarps- og kvikmyndaakademíunnar, sem heldur utan um Edduverðlaunin, og fyrrnefndra sjónvarpsstöðva.
Auglýst verður eftir innsendingum í upphafi ágústmánaðar í fleiri en 20 flokkum. Um leið og auglýst verður eftir innsendingum verður nýr verðlaunagripur Íslensku sjónvarpsverðlaunanna kynntur til sögunnar.
Framkvæmdastjórn verðlaunanna skipa fulltrúar sjónvarpsstöðvanna, Birkir Ágústsson, Helga Hauksdóttir og Gísli Berg auk Kristjáns Freys Halldórssonar sem sinnir verkefnastjórn.