Um KMÍ
Á döfinni

13.2.2025

Jörðin undir fótum okkar heimsfrumsýnd á CPH:DOX

Heimildamyndin Jörðin undir fótum okkar, í leikstjórn Yrsu Roca Fannberg, verður heimsfrumsýnd á kvikmyndahátíðinni CPH:DOX í Kaupmannahöfn. Myndin tekur þátt í NORDIC:DOX keppnishluta hátíðarinnar.

Í myndinni eru hversdagslegir atburðir, gleðilegir og sorglegir, fangaðir á filmu á meðan lífið heldur áfram í allri sinni fegurð hjá heimilisfólki á hjúkrunarheimilinu Grund. Handrit skrifa Yrsa og Elín Agla Briem. Wojciech Staroń sér um stjórn kvikmyndatöku. Framleiðandi myndarinnar er Hanna Björk Valsdóttir hjá Akkeri Films og meðframleiðandi er Małgorzata Staroń  (Staron Films).

CPH:DOX er ein helsta heimildamyndahátíð heims. Jörðin undir fótum okkar er þriðja heimildamynd Yrsu. Hennar fyrsta, Salóme var frumsýnd 2014 og vann meðal annars til verðlauna sem besta heimildamyndin á Nordisk Panorama. Síðasta haustið (2019), fyrsta heimildamynd hennar í fullri lengd, var sýnd á CPH:DOX 2020 eftir heimsfrumsýnsingu á hinni virtu kvikmyndahátíð í  Karlovy Vary í Tékklandi sumarið áður.