Um KMÍ
Á döfinni

30.4.2025

Jörðin undir fótum okkar sýnd á DOK.fest München

Heimildamyndin Jörðin undir fótum okkar, eftir Yrsu Roca Fannberg, verður sýnd á kvikmyndahátíðinni DOK.fest München , sem fer fram í Þýskalandi 12.-15. maí. DOK.fest München er ein stærsta heimildamyndahátíð Evrópu.

Í Jörðinni undir fótum okkar eru hversdagslegir atburðir, gleðilegir og sorglegir, fangaðir á filmu á meðan lífið heldur áfram í allri sinni fegurð hjá heimilisfólki á hjúkrunarheimilinu Grund. Handrit skrifa Yrsa og Elín Agla Briem. Wojciech Staroń sér um stjórn kvikmyndatöku. Framleiðandi myndarinnar er Hanna Björk Valsdóttir hjá Akkeri Films og meðframleiðandi er Małgorzata Staroń (Staron Films).

Myndin var heimsfrumsýnd á CPH:DOX í febrúar. Hún verður frumsýnd á Íslandi á Skjaldborgarhátíðinni í júní.