Um KMÍ
Á döfinni

4.10.2022

Kaffibarinn hlýtur heiðursnafngift Evrópsku kvikmyndaakademíunnar

Kaffibarinn er á meðal 22 kvikmyndatökustaða í Evrópu sem fá heiðursnafngiftina „Trea­sures of Europe­an Film Cult­ure“ , í ár. 

Nýstofnuð arfleifðardeild Evrópsku kvikmyndaakademíunnar veitir nafngiftina, en hún hefur það hlutverk að varðveita evrópska kvikmyndasögu og vekja athygli á tökustöðum sem eru táknrænir fyrir evrópska kvikmyndagerð.

Listinn telur alls 35 staði víða um Evrópu og er Kaffibarinn nú nefndur í sömu andrá og önnur merk kennileiti kvikmyndasögunnar, eins og Trevi-brunnurinn í Róm, Café des Deux Moulins í París og Hovs Hallar í Svíþjóð. 

Kaffibarinn fær sæti á listanum fyrir veigamikið hlutverk sitt í kvikmyndinni 101 Reykjavík, sem kom út árið 2000 í leikstjórn Baltasars Kormáks. Myndin byggist á samnefndri skáldsögu Hallgríms Helgasonar og kom Reykjavík á kortið sem „djamm-höfuðborg Evrópu“.

Íslandsstofa og European Film Awards (EFA) efndu til viðburðar á barnum 3. október þar sem Pétur Óskarsson, framkvæmdastjóri Íslandsstofu bauð fólk velkomið. Matthijs Wouter, framkvæmdastjóri EFA, var einnig viðstaddur. Lilja Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra, og Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri, veittu aðstandendum kvikmyndarinnar ásamt fulltrúum Kaffibarsins verðlaunaskjöld.

Pétur Óskarsson, framkvæmdastjóri Íslandsstofu, Dagur B. Eggertsson borgarstjóri, Hallgrímur Helgason rithöfundur, Lilja Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra og Matthijs Wouter, framkvæmdastjóri Evrópsku kvikmyndaverðlaunanna.

Viðurkenningin markar upphaf þess að Evrópsku kvikmyndaverðlaunin verða haldin hér á landi í Hörpu, 10. desember. Mikill heiður fylgir því að fá að halda hátíðina. Annað hvert ár er hún haldin í Berlín en þess á milli í öðrum evrópskum borgum.

„101 Reykjavík er ein af perlum íslenskrar kvikmyndasögu og hróður hennar hefur borist um allan heim. Það er gaman að heiðra Kaffibarinn í dag, hann er ekki síður menningarfyrirbæri á Íslandi. Hann er fyrir löngu orðinn eitt af kennileitum borgarinnar, aðdráttarafl fyrir ferðamenn og ég held nú líka að ansi margir Íslendingar eigi sína eigin Kaffibarssögu,” segir Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra.

„Kaffibarinn er auðvitað lykilstaður í íslensku nætur- og skemmtanalífi og í raun líka menningarlífi. Það er engin tilviljun að hann hafi verið valinn sem heimahöfn Hlyns í 101 Reykjavík Hallgríms Helgasonar sem varð líklega ein fyrsta íslenska kvikmyndin sem fangaði nýju Reykjavík sem var að verða borg og hina einstöku stemningu sem hér er – allt í frábærum meðförum Baltasars Kormáks og einvalaliðs kvikmyndagerðarfólks og leikara,“ segir Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri Reykjavíkur.

„Það er mikill heiður að Kaffibarinn fái þessa viðurkenningu frá Evrópsku kvikmyndaakademíunni. Þegar kvikmyndin 101 Reykjavík kom út var Kaffibarinn aðalstaðurinn og þar hittumst við Hallgrímur Helgason reglulega. Þetta var heimili að heiman og fastagestir tóku að sér að leika í kvikmyndinni. Það er virkilega gaman að Kaffibarinn skuli enn lifa góðu lífi eftir öll þessi ár. Það felast mikil tækifæri í því að Evrópsku kvikmyndaverðlaunin skulu vera haldin í Reykjavík í ár og megum við búast við mikilli kvikmyndaveislu í desember,“ segir Baltasar Kormákur, leikstjóri.

Evrópska kvikmyndaakademían leitast við að styðja og tengja saman 4.400 meðlimi sína ásamt því að kynna verk þeirra. Markmiðið er að miðla þekkingu og fræða áhorfendur á öllum aldri um evrópska kvikmyndagerð. Akademían vill sameina alla þá sem una evrópskri kvikmyndagerð og nær það hámarki í nóvember mánuði sem árlega er tileinkaður evrópskri kvikmyndagerð og svo Evrópsku kvikmyndaverðlaununum (EFA) í desember.