Um KMÍ
Á döfinni
  • KMI_logo_171203

14.2.2022

KMÍ kynnir nýja starfsmenn og auglýsir starf sérfræðings

Baldvin Kári Sveinbjörnsson, Eva Maria Daniels, Helga Brekkan og Ottó Geir Borg hafa verið ráðin sem kvikmyndaráðgjafar hjá Kvikmyndamiðstöð Íslands og hafa þegar hafið störf. Alls fylla þau tvö og hálft stöðugildi sem ólíkir ráðgjafar hjá Kvikmyndamiðstöð Íslands. Davíð Kjartan Gestsson hefur verið ráðinn í starf sérfræðings í miðlun og stafrænni þróun og hefur störf um miðjan mars. Þá hefur Steven Meyers, sem gegnt hefur starfi ráðgjafa hjá Kvikmyndamiðstöð Íslands, látið af störfum.

Að auki auglýsir Kvikmyndamiðstöð Íslands starf sérfræðings í myndlæsi og stafrænni miðlun kvikmynda. Hagvangur annast móttöku umsókna og umsóknarfrestur er 27. febrúar.

Baldvin Kári Sveinbjörnsson

Baldvin Kári er kvikmyndagerðarmaður með reynslu af ýmsum störfum á sviði kvikmyndagerðar. Undanfarið hefur hann starfað sem háskólakennari í handritaskrifum í Bandaríkjunum og sem sjálfstætt starfandi handritarágjafi og höfundur. Baldvin er með háskólamenntun í handritaskrifum og leikstjórn.

Eva Maria Daniels

Eva Maria lærði kvikmyndaframleiðslu í Kaupmannahöfn. Hún hefur starfað sem kvikmyndaframleiðandi og rekið sitt eigið framleiðslufyrirtæki erlendis í rúmlega áratug, lengst af í London, New York og Los Angeles. Hún hefur mikla reynslu af því að meta hugmyndir og handrit og þróa ný handrit í samvinnu við fjárfesta og kvikmyndaver.

Helga Brekkan

Helga Brekkan er kvikmyndagerðarkona, en hún hefur m.a. starfað sem leikstjóri, framleiðandi, handritshöfundur og við kvikmyndatöku og klippingar. Helga þekkir einna best til heimildamyndagerðar í gegnum leikstjórn og handritsgerð. Hún starfaði erlendis í rúmlega 30 ár, lengst af í Stokkhólmi og Berlín, en er nú búsett á Íslandi.

Ottó Geir Borg

Ottó Geir Borg er handritshöfundur og hefur starfað við handritsráðgjöf á íslenskum kvikmyndum í rúmlega 20 ár. Hann starfaði sem yfirmaður þróunarsviðs Zik Zak kvikmynda á árunum 2007-2014, og hefur síðan þá starfað sjálfstætt við handritsráðgjöf. Einnig hefur hann kennt námskeið í handritsskrifum og kvikmyndalæsi hjá Kvikmyndaskóla Íslands.

Davíð Kjartan Gestsson

Davíð Kjartan er með B.A. gráðu í Almennri bókmenntafræði og M.A. gráðu í Hagnýtri ritstjórn og útgáfu frá Háskóla Íslands. Frá árinu 2014 hefur Davíð starfað sem vefritstjóri hjá RÚV, þar sem hann hefur umsjón með menningarumfjöllun og framleiðslu menningarefnis fyrir vef- og samfélagsmiðla RÚV. Áður starfaði Davíð sem verkefnastjóri í vefumsjón og samfélagsmiðlun við verkefnið Reykjavík bókmenntaborg, auk þess sem hann var vefritstóri Sögueyjunnar Ísland.

Kvikmyndamiðstöð býður Baldvin, Evu, Helgu, Ottó og Davíð hjartanlega velkomin til starfa og hlakkar til samstarfsins. Jafnframt þökkum við Steven gott samstarf og óskum honum alls hins besta a nýjum vettvangi.


Starf sérfræðings í myndlæsi og stafrænni miðlun

Umsóknarfrestur er 27. febrúar og nánari upplýsingar má finna á vef Hagvangs.

Kvikmyndamiðstöð Íslands óskar eftir að ráða sérfræðing í myndlæsi og stafrænni miðlun kvikmynda. Meðal hlutverka sérfræðings er að marka stefnu og áætlanir varðandi aukið mynd- og miðlalæsi almennings og þróa stafræn námsgögn fyrir öll skólastig, að erlendri fyrirmynd, í samstarfi við kvikmyndagerðarmenn og hlutaðeigandi menntastofnanir. Sérfræðingur markar stefnu um að auka aðgengi fagfólks og almennings að alls kyns íslensku myndefni á alþjóða vettvangi.

Lesa nánar

Helstu verkefni og ábyrgð:

· Stuðla að auknum skilningi á kvikmyndum, mynd- og miðlalæsi

· Undirbúningur og gerð samninga um kvikmyndaverk og eftirfylgni

· Efla umgjörð fyrir gerð vandaðs barnaefnis í samvinnu við hagaðila

· Umsjón með þróun, þýðingum og útgáfu á námsefni fyrir öll skólastig í samvinnu við stofnanir, rétthafa og hagaðila

· Undirbúningur, mótun og framkvæmd um stafræna miðlun á hvers konar kvikmyndaefni

· Gerð alþjóðlegra samninga um höfundarrétt á kvikmyndaverkum

Menntunar- og hæfniskröfur:

· Háskólamenntun sem nýtist í starfi

· Þekking á kvikmyndum og kvikmyndasögu og reynsla af alþjóðlegu samstarfi á sviði kvikmynda-og sjónvarps

· Staðgóð þekking og reynsla af öflun efnis og kaupum á alþjóðlegu efni ætlað börnum og ungmennum

· Reynsla af undirbúningi myndefnis til notkunar, þýðingar og talsetningar

· Góð samskiptahæfni, frumkvæði og hugmyndaauðgi auk færni til að tileinka sér nýungar á starfssviðinu

· Gott vald á ensku og íslensku, bæði í ræðu og riti

· Þekking á norrænu tungumáli og reynsla af norrænu samstarfi er kostur

Um nýja stöðu er að ræða og í samræmi við kvikmyndastefnu til ársins 2030 þar sem er m.a. lögð áhersla á að efla kynningarstarf í takt við hraðar breytingar í miðlun og dreifingu kvikmynda. Sífellt fleiri sækjast eftir vönduðu staðbundnu efni og með nýjum efnisveitum og miðlum eru komnar fram nýjar aðferðir til að koma kvikmynduðu efni á framfæri. Leggja þarf áherslu á aukna samhæfingu ólíkra sviða, svo sem kvikmynda og sjónvarpsefnis, í ljósi breytinga. Góður árangur er þó ekki síst háður framleiðslu á staðbundnu efni sem sprettur úr íslenskum veruleika og menningu.

Kvikmyndamiðstöð Íslands er opinber stofnun og ber m.a. að stuðla að framleiðslu, dreifingu og kynningu á íslenskum kvikmyndum. Kvikmyndamiðstöð vinnur einnig að eflingu kvikmyndagreinarinnar á Íslandi og því að treysta tengsl á máli íslenskra og erlendra kvikmyndaraðila. www.kvikmyndamiðstöð.is.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Stefanía Hildur Ásmundsdóttir, stefania@hagvangur.is

Umsókn skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni viðkomandi til að gegna starfinu rökstudd.

Laun taka mið af kjörum opinberra starfsmanna.