Um KMÍ
Á döfinni

14.5.2018

Kona fer í stríð hlýtur frábærar viðtökur í Cannes

Kona fer í stríð, önnur kvikmynd leikstjórans og handritshöfundarins Benedikts Erlingssonar, var heimsfrumsýnd á Critics‘ Week, hliðardagskrá kvikmyndahátíðarinnar í Cannes, þann 12. maí. Viðtökurnar á sýningunni voru frábærar þar sem aðstandendur myndarinnar hlutu langvarandi standandi lófatak.

Fyrstu dómar myndarinnar hafa í kjölfarið litið dagsins ljós og eru þeir afar lofsamlegir, t.a.m. frá hinum virtu kvikmyndatímaritum Variety, The Hollywood Reporter og Cineuropa. Screen International og The Guardian veita myndinni einnig góða dóma.

Kona fer í stríð verður frumsýnd hérlendis þann 22. maí.

Kona fer í stríð segir frá kórstjóra á fimmtugsaldri sem ákveður að bjarga heiminum og lýsir yfir stríði gegn allri stóriðju í landinu. Hún gerist skemmdarverkamaður og er tilbúin til að fórna öllu fyrir móður jörð og hálendi Íslands, þar til munaðarlaus stúlka stígur inn í líf hennar. Að bjarga einu barni eða að bjarga heiminum?

Benedikt Erlingsson leikstýrir Konu fer í stríð og skrifar handritið ásamt Ólafi Egilssyni. Í aðalhlutverki er Halldóra Geirharðsdóttir og í öðrum hlutverkum eru Jóhann Sigurðarson, Davíð Þór Jónsson, Magnús Trygvason Eliassen og Ómar Guðjónsson. Myndin, sem er íslensk/frönsk/úkraínsk samframleiðsla, er framleidd af Marianne Slot, Benedikt Erlingssyni og Carine Leblanc og meðframleidd af Serge Lavrenyuk, Bergsteini Björgúlfssyni og Birgittu Björnsdóttur. Bergsteinn Björgúlfsson sér um stjórn kvikmyndatöku, Davíð Alexander Corno klippir myndina og Davíð Þór Jónsson semur tónlist myndarinnar.

Með sölu og dreifingu erlendis fer Beta Cinema (thorsten.ritter@betacinema.com).