Kvikmyndaframleiðsla er hörku menningariðnaður - málþing og aðalfundur
Samband íslenskra kvikmyndaframleiðenda (SÍK) og Samtök iðnaðarins (SI) standa fyrir málþingi í Gamla bíói þann 26. maí frá kl. 16:00 - 17:30.
Farið verður yfir jákvæða þróun iðnaðarins hérlendis og fjallað um fjármála- og tryggingaþjónustu í kvikmyndagreininni með fókus á alþjóðlegar lausnir fyrir íslenskan markað.
Dagskrá:
-
Almar Guðmundsson framkvæmdastjóri SI stýrir málþinginu
- Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir forstöðumaður mennta- og nýsköpunarsviðs hjá SA opnar málþingið
- Guðný Guðjónsdóttir forstjóri Sagafilm fer yfir hagtölur greinarinnar
- Per Naumann forstjóri European Film Bonds fjallar um framboð á ýmiskonar tryggingum í tengslum við fjármögnun kvikmynda
- Mads Peter Ole Olsen forstöðumaður norðurlandadeildar franska bankans Natixis Coficíné fjallar um fjármögnun og lán vegna kvikmynda
Framleiðsluhluti kvikmyndagreinarinnar á Íslandi velti yfir 70 milljörðum árin 2009-2015 og ársvelta hefur meira en tvöfaldast á sama tímabili. Kvikmyndagreinin er yfir 100 ára gömul en dýpri þekking á fjármálahluta í nútíma kvikmyndaframleiðslu og öllum þeim möguleikum sem í boði eru fyrir fjárfesta og fjármálakerfið má bæta í bankakerfinu á Íslandi. Markmið málþingsins er að kynna fyrir íslenskum fjárfestum, sjóðum og bönkum leiðir sem alþjóðleg kvikmyndaframleiðsla notar til að lækka áhættu, tryggja útkomu mynda, tryggingar, fjárstreymisfjármögnun og fleira sem skiptir máli við að fjármagna kvikmyndaframleiðslu:
- Verklokatryggingar
- Verkefnatryggingar
- Fjárstreymisfjármögnun
- GAP fjármögnun
- Alþjóðleg innheimtufyrirtæki
- Fjármögnun með skattaívilnunum
- Forsölur sem hluti af fjármögnun
- Erlendir sjóðir og stofnanaframlög að utan
Málþingið er hugsað fyrir sérfræðinga í fjármálageiranum, fjárfesta, framleiðendur kvikmyndaefnis og annars áhugafólks um viðskiptahluta kvikmyndagerðar, sem er hörku menningariðnaður!
Málþingið er haldið í tilefni af aðalfundi SÍK sem fram fer á sama stað frá kl. 15:00 - 15:45.
Skráning fer fram á heimasíðu SI.
Vinsamlegast takið fram í athugasemdum í skráningu hvort þið ætlið aðeins að sitja málþingið eða bæði aðalfund og málþing.