Kvikmyndagerð sett á oddinn í ríkisheimsókn forseta Íslands til Svíþjóðar
Þriggja daga heimsókn Höllu Tómasdóttur, forseta Íslands, og Björns Skúlasonar eiginmanns hennar, til Svíþjóðar hófst í dag. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra og Alma Möller heilbrigðisráðherra taka einnig þátt í dagskrá heimsóknarinnar ásamt opinberri sendinefnd og fulltrúum viðskipta- og menningarlífs.
Það eru Karl XVI. Gústaf konungur og Silvía drottning sem bjóða til heimsóknarinnar og er markmið hennar að styrkja tengsl landanna og vinna að frekara samstarfi á ýmsum sviðum, þar á meðal kvikmyndagerðar.
Í tilefni heimsóknarinnar er sendinefnd á sviði sjónvarps- og kvikmyndagerðar með í för. Tekur hún þátt í dagskrá, ásamt sænskum fyrirtækjum á sviði sjónvarps- og kvikmyndagerðar, sem skipulögð er í samstarfi Sænsku stofnunarinnar og Sænsku kvikmyndastofnunarinnar við Sendiráð Íslands í Stokkhólmi, Kvikmyndamiðstöð Íslands og Film in Iceland.
Í sendinefndinni eru Gísli S. Erlingsson (forstöðumaður Kvikmyndamiðstöðvar Íslands), Helgi Felixson (Felix films), Andri Ómarsson (Glassriver), Anna G. Magnúsdóttir og Anders Granström (Film Partner Iceland/Little Big Productions), Kjartan Þórðarson (Sagafilm Nordic), Gunnar Sigurðsson (Samtök iðnaðarins), Anton Máni Svansson (STILL VIVID), Erlendur Sveinsson (Sensor.tv) og Davíð Ó. Ólafsson (True North).
Í Kvikmyndahúsinu í Stokkhólmi verður sjónum beint að samstarfi Íslands og Svíþjóðar á sviði kvikmynda og sjónvarpsþáttagerðar. Markmiðið er að treysta tengslin á milli kvikmyndageira Íslands og Svíþjóðar og skapa ný tækifæri til frekara samstarfs milli beggja landa.