Um KMÍ
Á döfinni

10.6.2025

Kvikmyndin Ljósvíkingar sigursæl á Indlandi

Kvikmyndin Ljósvíkingar vann til þrennra verðlauna á Kashish-kvikmyndahátíðinni í Indlandi. Myndin var valin besta leikna myndin á hátíðinni og fékk sérstaka viðurkenningu dómnefndar fyrir handrit. Þá hlaut Arna Magnea Danks verðlaun fyrir besta leik í aðalhlutverki.

Variety greindi frá verðlaunaafhendingunni. „Myndin hefur ferðast á milli svo margra kvikmyndahátíða og þetta eru fyrstu verðlaunin sem hún hlýtur,“ er haft eftir leikstjóra myndarinnar og handritshöfundi, Snævari Sölvasyni. „Ég elska Indland og þessi verðlaun hafa varpað sólarljósi á þessa fremur kalda sveit.“

„Það er ekki á hverjum degi sem trans kona eins og ég fær verðlaun,“ segir Arna Magnea. „Ég þakka leikstjóranum mínum, meðleikara og hverri einustu manneskju sem tók þátt í að skapa þetta listaverk, sem er ekki aðeins sérstætt á Íslandi heldur einnig í heiminum öllum.“

Ljósvíkingar hefur verið sýnd á fjölda alþjóðlegra hátíða síðan hún var frumsýnd á Íslandi, haustið 2024. Þar ber helst að nefna Palm Springs Film Festival, Filmfest DC og Seattle Film Festival í Bandaríkjunum. 

Ljósvíkingar fjallar um æskuvinina Hjalta og Björn sem reka fiskveitingastað í sínum heimabæ yfir sumartímann. Þá dreymir um að geta haft opið allt árið um kring og þegar óvænt tækifæri þess efnis bankar upp á, tilkynnir Björn vini sínum að hún sé trans kona og muni framvegis heita Birna. Þessar breytingar reyna á vináttuna og þurfa þau bæði að horfast í augu við lífið á nýjan hátt til þess að bjarga því sem mestu máli skiptir.

Snævar Sölvason fer með leikstjórn myndarinnar og skrifar handrit hennar. Með aðalhlutverk fara Arna Magnea Danks og Björn Jörundur Friðbjörnsson. Myndin er framleidd af Júlíusi Kemp og Ingvari Þórðarsyni hjá Kvikmyndafélagi Íslands.

Kvikmyndin er styrkt af Kvikmyndamiðstöð Íslands. Hún hlaut framleiðslustyrk árið 2023 (kr. 110.000.000) og handritsstyrki 2 og 3 (kr. 600.000, kr. 800.000) árin 2014 og 2016.