Um KMÍ
Á döfinni

31.1.2023

Leikstjóri Smoke Sauna Sisterhood hlýtur verðlaun á Sundance

Heimildamyndin Smoke Sauna Sisterhood eftir eistnesku kvikmyndagerðarkonuna Önnu Hints var heimsfrumsýnd á Sundance-kvikmyndahátíðinni um helgina. Myndin er samframleiðsla milli Eistlands, Frakklands og Íslands. 

Anna Hints hlaut verðlaun í flokki World Cinema Documentary fyrir leikstjórn.

Hlín Jóhannesdóttir, frá íslenska framleiðslufyrirtækinu Ursus Parvus, er einn meðframleiðenda myndarinnar og tónlist hennar er í höndum Eðvarðs Egilssonar og eistnesku hljómsveitarinnar EETER. Hljóðhönnun sá Huldar Freyr Arnarson um.

https://vimeo.com/788671731?embedded=true&source=video_title&owner=3836127