Leynilögga frumsýnd á Íslandi
Leynilögga eftir Hannes Þór Halldórsson var frumsýnd á Íslandi síðastliðinn miðvikudag, þann 20. október, og samkvæmt tölum FRÍSK námu tekjur frá miðvikudegi til sunnudags 23.683.667 kr. Alls mættu 13.445 gestir á myndina í bíó á tímabilinu. Þann 19. október var hún forsýnd í Egilshöll og hlaut frábærar viðtökur viðstaddra.
Leynilögga er fyrsta leikna kvikmyndin sem Hannes Þór leikstýrir og fjallar myndin um grjótharða ofurlöggu sem er í baráttu við sjálfan sig á sama tíma og hann berst við hættulegustu glæpamenn landsins.
Leynilögga var heimsfrumsýnd á Locarno kvikmyndahátíðinni í ágúst og hefur þaðan af m.a. verið valin til þátttöku á kvikmyndahátíðinni Fantastic Fest í Austin, á BFI kvikmyndahátíðinni í Lundúnum og á alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Busan í Suður Kóreu.
Kvikmyndin er skrifuð af Nínu Petersen, Sverri Þór Sverrissyni og Hannesi Þór Halldórssyni. Myndin er framleidd af Lilju Ósk Snorradóttur fyrir Pegasus Pictures og með aðalhlutverk fara Auðunn Blöndal, Egill Einarsson, Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir, Vivian Ólafsdóttir, Sverrir Þór Sverrisson og Björn Hlynur Haraldsson.