Um KMÍ
Á döfinni

19.10.2022

Leynilögga tilnefnd til Evrópsku kvikmyndaverðlaunanna

Leynilögga, kvikmynd í leikstjórn Hannesar Þórs Halldórssonar, hefur verið tilnefnd sem besta gamanmyndin á Evrópsku kvikmyndaverðlaununum (European Film Awards) í ár.

Myndin fjallar um leynilögguna Bússa sem leikinn er af Auðunni Blöndal. Bússi er einn besti lögreglumaður Reykjavíkur sem er í mikilli baráttu við sjálfan sig á sama tíma og hann berst við hættulegustu glæpamenn landsins.

Verðlaunahátíðin fer fram í Reykjavík 10. desember. Hún er haldin annað hvert ár í Berlín en þess á milli til skiptis í öðrum borgum Evrópu.

Leynilögga var heimsfrumsýnd við standandi lófaklapp á kvikmyndahátíðinni í Locarno á Ítalíu 2021. Myndin hefur síðan ferðast heimshorna á milli og sýnd á eftirsóttum kvikmyndahátíðum.

Með aðalhlutverk fara Auðunn Blöndal, Egill Einarsson, Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir, Vivian D. Ólafsdóttir, Sverrir Þór Sverrisson og Björn Hlynur Haraldsson. Handrit skrifuðu Nína Petersen, Sverrir Þór Sverrisson, Hannes Þór Halldórsson. Framleiðandi er Lilja Ósk Snorradóttir.

Með sölu og dreifingu erlendis fer fyrirtækið Alief .

Berdreymi og Volaða land í forvali

Fleiri íslenskar kvikmyndir eiga möguleika á að verða tilnefndar til Evrópsku kvikmyndaverðlaunanna. Berdreymi, eftir Guðmund Arnar Guðmundsson, og Volaða land, eftir Hlyn Pálmason, eru á meðal 30 kvikmynda sem eru í forvali til verðlauna. Tilkynnt verður um tilnefningar 8. nóvember, að lokinni atkvæðagreiðslu meðlima Evrópsku kvikmyndaakademíunnar.