Um KMÍ
Á döfinni

16.9.2021

Leynilögga valin á alþjóðlegu kvikmyndahátíðina í Busan

Leynilögga eftir Hannes Þór Halldórsson hefur verið valin til þátttöku á hinni virtu alþjóðlegu kvikmyndahátíð í Busan í Suður Kóreu. Hátíðin, sem er ein sú stærsta í Asíu, fer fram frá 6. - 15. október.

Leynilögga var heimsfrumsýnd á Locarno kvikmyndahátíðinni í ágúst og hefur þaðan af einnig verið valin til þátttöku á kvikmyndahátíðinni Fantastic Fest sem fer fram í Austin, Texas frá 23. - 30. september, og á BFI kvikmyndahátíðinni í Lundúnum sem fer fram frá 6. - 17. október

Leynilögga er fyrsta leikna kvikmyndin sem Hannes Þór leikstýrir og fjallar myndin um grjótharða ofurlöggu sem er í baráttu við sjálfan sig á sama tíma og hann berst við hættulegustu glæpamenn landsins. Áætluð frumsýning myndarinnar hér á landi er 22. október í Sambíóum. 

Leynilögga trailer

Kvikmyndin er skrifuð af Nínu Petersen, Sverri Þór Sverrissyni og Hannesi Þór Halldórssyni. Myndin er framleidd af Lilju Ósk Snorradóttur fyrir Pegasus Pictures og með aðalhlutverk fara Auðunn Blöndal, Egill Einarsson, Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir, Vivian Ólafsdóttir, Sverrir Þór Sverrisson og Björn Hlynur Haraldsson.