Um KMÍ
Á döfinni

18.2.2025

List fyrir alla óskar eftir umsóknum

List fyrir alla, barnamenningarverkefni á vegum menningar- og viðskiptaráðuneytis, óskar eftir umsóknum frá starfandi listamönnum, stofnununum og aðra sem sinna barnamenningu á einhvern hátt.

Hlutverk List fyrir alla er að styðja við verkefni á sviði barnamenningar fyrir grunnskólabörn. Til barnamenningar teljast vekefni á sviði lista og menningar sem unnin eru fyrir börn og/eða með virkri þátttöku barna.

Markmið er að jafna aðgengi grunnskólabarna að fjölbreyttum og vönduðum listviðburðum óháð búsetu og efnahag.

Leitast er við að gera allar listgreinar sýnilegar innan verkefnisins eins og kostur er. Listverkefnin skulu í öllum tilfellum vera unnir af fagfólki og bestu mögulegu gæðum.

Umsóknarfrestur fyrir skólaárið 2025 – 2026 er 16. mars 2025. Sótt er um a vef Listar fyrir alla, þar sem finna má nánari upplýsingar.

Valnefnd metur umsóknir og gildi þeirra með hliðsjón af því hvernig þær falla að markmiðum verkefnisins List fyrir alla. Listviburðir og verkefni skulu í öllum tilvikum vera unnin af fagfólki og metnaði. Við mat á umsóknum er valnefnd heimilt að leita umsagnar, gerist þess þörf.